fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og ítarlegt og gott nefndarálit. Ég fæ kannski að byrja á að spyrja hv. þingmann á sama hátt og ég spurði formann hv. fjárlaganefndar, en í álitsgerð fjármálaráðs um þessa fjármálaáætlun kemur fram, með leyfi forseta:
„Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála.
Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.
Óútfærðar afkomubætandi aðgerðir draga úr trúverðugleika.
Óljóst hvers vegna búast megi við viðsnúningi í þróun framleiðni.
Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.
Tilhneiging til víðtækra aðgerða við sértækum vanda grefur undan skilvirkni og sjálfbærni.
Lækkun skuldahlutfalls byggir á bjartsýnum forsendum um hagvöxt.
Afkomubati er hægfara og háður mikilli óvissu.
Varhugavert er að treysta á hagfelldar efnahagsforsendur.
Skortur á gagnsæi um forsendur launa- og verðlagsþróunar draga úr trúverðugleika.
Mikil og falin áhætta getur verið fólgin í stofnun innviðafélags.“
Virðulegur forseti. Nú var ég bara að vísa í það sem hægt er að draga auðveldlega út úr álitsgerð fjármálaráðs og minni á að fjármálaráð á lögum samkvæmt að fara yfir fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Þetta eru óháðir sérfræðingar sem eiga að gera það að verkum að við vöndum hér okkar vinnubrögð og vöndum til verka.
Mín spurning til hv. þingmanns er því þessi: Hvernig hefur fjárlaganefnd brugðist við þessum ábendingum og athugasemdum fjármálaráðs? Það má geta þess að það er töluvert síðan þessar ábendingar komu fram og síðan þá hefur komið uppfærð hagspá sem sýnir kannski að þetta horfi til enn verri vegar, en eins og fjármálaáætlunin lá fyrir hér í fyrri umræðu.