157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég held að hv. þingmaður sé að misskilja áform ríkisstjórnarinnar svolítið. Ég held að það séu engin áform um neinn endurreikning nema ef vera skyldi mánudaginn 31. ágúst í fyrsta lagi. Ég held að það sé sérstakt markmið að geta hallað sér upp að þessari óbreyttu áætlun fram yfir tiltekna dagsetningu þarna í lok ágúst, tiltekinn laugardag raunar. Að því sögðu þá velti ég fyrir mér hvort hv. þingmaður muni eftir viðlíka sleifarlagi við það að uppfæra áætlanir hér í þinginu. Það er auðvitað þekkt að við framlagningu fjárlaga hverju sinni er beðið nýrrar hagspár áður en gengið er frá nefndaráliti meiri hluta og vinnu við uppfærslu á töflum og þess háttar, þannig að það er verið að uppfæra og endurreikna hér á hverjum þingvetri mjög flókin og yfirgripsmikil mál. Mér hefur bara ekki þótt það hljóma trúverðugt að það hafi ekki unnist tími til að uppfæra það sem er undirliggjandi í þessari fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar frá þeim tíma að nýja spáin kom fram og til þess tíma að nefndarálitið var loksins lagt fram seint og um síðir, gott ef það var ekki í gærmorgun frekar en í fyrradag, nefndarálit hv. meiri hluta fjárlaganefndar. Ég spyr því: Telur hv. þingmaður að það sé raunverulega þannig að það séu líkur á að ríkisstjórnin eða meiri hluti fjárlaganefndar eftir atvikum myndi láta uppreikna þetta plagg ef það yrði fallist á að hafa þingstubb í ágúst?