157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:31]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Ég held að hv. þingmaður hafi heilmikið til síns máls. Reyndar held ég að ríkisstjórnin sé búin að endurreikna fjármálaáætlun vegna þess að þessi nýja hagspá kom fyrir þó nokkru síðan frá Seðlabankanum sem hér er miðað við og þá var sagt að það væri ekki tími, það tæki tvær vikur. Síðan eru liðnar tvær vikur. Hvað er fólk búið að vera að gera í fjármálaráðuneytinu? Hefur það setið með hendur í skauti? Ég held að það sé búið að reikna þetta út og ég held að það sé rétt sem þingmaðurinn segir að það þjóni ekki hagsmunum ríkisstjórnarinnar að fara að ræða hér uppfærða fjármálaáætlun fyrr en kannski við fjárlagaumræðuna í haust. Það stendur vitaskuld ekki steinn yfir steini, hvorki í málflutningnum né þessari vinnu. Þannig að ég tek undir með hv. þingmanni að þetta sleifarlag hér við vinnu fjármálaáætlunar er með öllum ólíkindum. Ég hef ekki setið svo lengi á þingi en á síðasta kjörtímabili var vinnulagið með allt öðrum hætti. Ég ætla líka að leyfa mér að segja að það kemur fram í meirihlutaálitinu nefndarálits meiri hlutans að allar forsendur séu í raun brostnar og hv. nefnd sendir bara þannig nefndarálit frá sér. Ég held að það þurfi nú varla að segja meira því það eru stjórnarliðar sem skrifa þetta meirihlutaálit og skrifa það bara út í rauninni að þarna séu allar forsendur brostnar. Það er alvarlegt.