157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[21:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur og ég verð nú að gangast við því að hafa oft og tíðum gagnrýnt fyrri ríkisstjórn heldur harkalega en hún átti það allt saman skilið. (Gripið fram í: … ekki sanngjarnt.) Þetta er ekki sanngjarnt hjá þingmanninum, er sagt hér úr hliðarsal. Þetta er allt í góðum gír, sannleikanum verður hver sárreiðastur sagði einhvers staðar. (Gripið fram í: Þetta er ekki satt.) Ég vil spyrja hv. þingmanna, af því að ég veit að hún hefur skilning á mikilvægi framleiðniaukningar til að standa undir þeim útgjaldavexti sem ríkisstjórnin áformar yfir þetta fimm ára tímabil: Þykir hv. þingmanni merkjasendingar stjórnvalda nú um stundir skynsamlegar og góðar, sé markmiðið að auka verðmætasköpun og hagsæld í landinu eða gætu stjórnvöld stillt miðið betur að mati hv. þingmanns hvað það varðar að auðvelda fyrirtækjum að ná betri tökum og árangri í sínum rekstri, sem væri síðan grundvöllur að því að hér gæti hagsæld aukist til framtíðar eins og hún hefur gert núna um langt árabil? Ég ætla að koma inn á þetta í ræðu minni. Það er sérstakur kafli í nefndaráliti meiri hlutans sem heitir, með leyfi forseta, Framleiðni og hagvöxtur til framtíðar. Mér þykir miðið býsna skakkt stillt í þeirri afstöðu sem þar kemur fram. Ég hef áhyggjur af því að við sitjum mögulega uppi með þessa ríkisstjórn enn um sinn og ef þetta er línan sem á að leggja þá er ekki við góðu að búast hvað varðar heimtur tekna almennt inn í ríkissjóð þegar fram líða stundir, næsta ár gengur í garð og síðan þau sem á eftir fylgja.