fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af því hvernig það hlýtur að vera ákveðið Íslandsmet hjá ríkisstjórninni hvernig henni hefur einhvern veginn tekist á sínu rúma ári, fyrsta ári, við stjórnvölinn að ráðast á eiginlega allar atvinnugreinar þjóðarinnar. Þegar ég tala um árás þá eru þetta skattaárásir, endalausar og mjög íþyngjandi. Og af því að hv. þingmaður spyr mig hvernig megi auka framleiðni og hagvöxt til framtíðar þá er ríkisstjórnin því miður alveg komin út í skurð hvað það varðar vegna þess að við sjáum núna að það er farið að draga úr hagvexti. Atvinnuleysi er að aukast. Við sjáum þetta alls staðar. Við heyrum núna frá ferðaþjónustunni þar sem er búið að leggja mjög íþyngjandi skatta á t.d. bílaleigur. Nú á að leggja skatt á baðlónin. Við sjáum fækkun ferðamanna. Í mínu kjördæmi, Suðurkjördæmi, en nánast allir ferðamenn heimsækja Suðurkjördæmi, óhjákvæmilega, því að þar er auðvitað inngangan inn í Ísland í gegnum Keflavíkurflugvöll, heyri ég alls staðar áhyggjuraddir. Það er fækkun. Fólk er að eyða miklu minna, fer í færri ferðir og allt ber þetta að sama brunni; kakan verður minni, það verða minni tekjur á endanum til ríkisins. Það verður minna til að keyra velferðarkerfið okkar áfram.
Aftur vil ég árétta að það er náttúrlega með öllum ólíkindum að ríkisstjórnin skuli ekki vilja koma hér til samtals við okkur síðsumars til að ræða endurreiknaða fjármálaáætlun og við getum ekki slitið þetta í sundur vegna þess að þau vilja ekki ræða þetta út af þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst. Við viljum fá að ræða þessi mál við ríkisstjórnina, en það er klárt nei, við treystum ekki, held ég, þjóðinni til að taka við þessum þremur, fjórum þingdögum í lok ágúst. (Forseti hringir.) Öll áhersla ríkisstjórnarinnar hefur verið í þá átt að hlaupa inn í Evrópusambandið. Það er þráhyggjumál Viðreisnar, (Forseti hringir.) eina mál Viðreisnar, leyfi ég mér að segja, í staðinn fyrir að huga hér að heimilum og fyrirtækjum í landinu sem þau voru kosin til að gera.