fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða og yfirgripsmikla ræðu. Þegar ég hlusta á hv. þingmann minnir það mig á það sem ég byrjaði á að ræða hér í ræðunni minni áðan, þegar við vorum að gera fjárhagsáætlanir í sveitarstjórn Fjarðabyggðar. Það má vel vera að gamla áætlunin hafi gert ráð fyrir loðnuvertíð og blússandi vexti en svo í millitíðinni bjó ég til það dæmi að það hefði engin loðnuvertíð verið, við vitum það, og það væri kannski búið að stoppa annan kerskálann í álverinu en við ætlum samt að ræða gömlu áætlunina og samþykkja gömlu áætlunina þrátt fyrir að vitum í bæjarstjórninni að það sé engin loðnuvertíð og að það sé búið að slökkva á öðrum kerskála álversins, sem hefur áhrif á tekjur sveitarfélagsins. Mér finnst það vera svolítið staðan sem við erum í hér í dag. Við vitum að forsendur eru breyttar. Við vitum að tölurnar eru aðrar í áætluninni en samt erum við bara að ræða hér eitthvert gamalt plagg. Það er eins og að ræða fréttir dagsins í dag með fréttum úr blaði frá síðustu viku. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki að þetta sé í raun bara merki um ríkisstjórn sem er búin að gefast upp á verkefninu. Hún er búin að kasta inn handklæðinu. Ég byrjaði ræðu mína á að vitna í hljómsveitina Stjórnina: Ég lifi í voninni að ég geispi ekki golunni. Það finnst mér kannski bara vera orðin mantra þessarar ríkisstjórnar og þessi fjármálaáætlun sýnir það. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er hann sammála mér í því?