157. löggjafarþing — 124. fundur,  12. júní 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:03]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er þá kannski hægt að botna þann texta sem ég byrjaði á: Nenni ekki að hanga hér, vil ferðast og skemmta mér, sem segir kannski svolítið um ESB-leiðangurinn og það sé miklu betra að fara bara eitthvert og ferðast, ferðast til Brussel og hafa gaman þar og eyða peningum skattgreiðenda í 2–3 milljarða kr. vegferð þar. Það eru alltaf til peningar í öll gæluverkefni ríkisstjórnarinnar, það vantar ekki. En öll þessi gæluverkefni ríkisstjórnarinnar eru borguð af skattgreiðendum. Að eyða umfram efni er borgað af skattgreiðendum. Því langar mig að spyrja hv. þingmann. Hér fóru í gegn fjárlög í desember þar sem skattar og gjöld voru aukin um 30 milljarða og nú stendur til að auka hér skatta og gjöld á baðlón, á fjármálakerfin og annað og það verður alltaf á endanum neytandinn, íslenska þjóðin, almenningur, sem mun borga þetta. Þau sitja alltaf eftir og borga brúsann. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji virkilega að það sé eina ráðið, eins og virðist vera eina ráð vinstri manna, að skatta sig út úr vandamálunum og sú nálgun að leggja alltaf hærri og hærri skatta en líta aldrei í eigin barm þegar kemur að því að reyna að draga úr ríkisútgjöldum, að reyna að skera fituna af.