fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Vinstri menn reyna þetta alltaf en niðurstaðan er alltaf sú sama, að það er ekki hægt að skattleggja sig út úr vandræðum í þessu samhengi. Það væri hægt að fara hér í vangaveltur um ýmsar sálfræðilegar skilgreiningar á þessari áráttu en ég held að ég ætli að sleppa því núna því að það gæti einhver skirrst við. En ég held að það sé fullreynt, og það er alveg sama hvert í heiminum horft er, að reyna að skattleggja sig út úr efnahagslegum vandræðum. En þessi ríkisstjórn virðist hafa þetta eina svar við vandræðum sínum. Það var í einhverri fyrirsögn í viðtali í vikunni sem sagði efnislega að það væri ekki hægt að mjólka dauða kú. Það er auðvitað staðan sem atvinnulífið nálgast jafnt og þétt ef allt súrefni er tekið frá því. Ég held að þessari áráttu, þessari skattasýki stjórnvalda nú um stundir sem gengur enn lengra heldur en maður hefur áður séð, verði að linna. Ég óttast hreinlega að núverandi stjórnvöld séu svo einbeitt í þessu eina verkefni sínu sem skiptir máli nú um stundir, að reyna að koma Íslandi í áframhaldandi eða uppteknar aðlögunarviðræður við Evrópusambandið, að svona lykilatriði sem er svo nauðsynlegt til að ná niður verðbólguvæntingum, stýrivöxtum, verðbólgu og því öllu, ég er hræddur um að þessi verkefni séu víkjandi og það er ekkert í núverandi framgangi stjórnarinnar sem eykur mér bjartsýni í þeim efnum.