fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og mig langar sérstaklega að spyrja hv. þingmann út í álit fjármálaráðs. Ég hef alltaf lesið þau af athygli þegar þau hafa komið fram og þau hafa oft verið gagnleg okkur í stjórnarandstöðunni þegar lagt er mat á fjárlög hvers tíma og þau plögg sem fjármálaráð leggur mat á. Ég man aldrei eftir viðlíka varnaðarorðum og jafn fjölbreyttum alvarlegum athugasemdum og núna eru settar fram í tengslum við nálgun þessarar ríkisstjórnar. Hefur hv. þingmaður sem fjárlaganefndarmaður eitthvað lagt mælistiku á það hvernig sjónarmið fjármálaráðs eru núna samanborið við fyrri ríkisstjórnir tvær, svo við afmörkun þann tíma? Það má fara aftar í tíma ef þannig hentar, þetta erindi var fyrst lagt fram 2016 sirkabát, sjónarmið á grundvelli laga um opinber fjármál. Ég man í öllu falli ekki eftir viðlíka plaggi og núna liggur fyrir og hv. þingmaður vísaði til.