þingfundir í ágúst.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin ætlar að knýja fram fjármálaáætlun í gegnum Alþingi þótt forsendur hennar hafi veikst verulega frá því að hún var lögð fram. Í áliti meiri hluta fjárlaganefndar er viðurkennt að efnahagsforsendur séu lykilforsendur þess hvernig við metum tekjur, gjöld, afkomu og skuldastöðu ríkissjóðs. Þar kemur jafnframt fram að ný spá Seðlabankans sýni minni hagvöxt á næsta ári, meira atvinnuleysi og verri afkomuhorfur en áætlunin byggðist á. Á sama tíma byggir ríkisstjórnin markmið sitt um hallalaus fjárlög 2027 á afgangi sem nemur aðeins 1,1 milljarði kr. Það þarf mjög lítið til svo að það svigrúm þurrkist út. Bent hefur verið á að þegar litið er aðeins á þau frávik sem þegar liggja fyrir geti niðurstaðan orðið 16–22 milljarða kr. halli en ekki afgangur. Fjármálaáætlun á að sýna stöðuna eins og hún er, ekki eins og ríkisstjórnin vonar að hún verði. Samhliða þessu er fram undan þjóðaratkvæðagreiðsla um Evrópusambandið. Ríkisstjórnin hefur hafnað því að færa dagsetninguna aftar og nú heyrist frá stjórnarliðum að málið sé komið til þjóðarinnar, eins og það leysi Alþingi og ríkisstjórn undan ábyrgð á upplýsingagjöf og umræðu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt til eðlilega og hófsama leið; að þing komi saman í nokkra daga í ágúst, ræði Evrópumálin og gefi ríkisstjórninni svigrúm til að leggja fram uppfærða fjármálaáætlun.
Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra er þessi: Hvernig telur forsætisráðherra það samrýmast ábyrgri stjórnarforystu að hafna þingstubbi í ágúst þegar sú leið gæfi Alþingi tækifæri til að ræða Evrópumálin fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og tryggja að fjármálaáætlun ríkisins byggist á raunverulegum og uppfærðum forsendum?