157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

þingfundir í ágúst.

[10:34]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það liggur alveg fyrir að áætlun til 5 ára er áætlun. Þetta er hér í formi þingsályktana og svo koma fjárlög sem eru lög sem við samþykktum á Alþingi í haust. Þessi fjármálaáætlun er lögð fram eftir gefnum forsendum sem var fyrir fram vitað að yrðu með þessum hætti, grunnspá Seðlabankans frá því í febrúar, síðan yrðu fjárlög útfærð í smáatriðum miðað við maíspá. Höfum það líka í huga, forseti, að spágerð af þessu tagi, hvort sem það snýr að fjárlögum eða fjármálaáætlun, snýr ekki bara að útkomu úr hagspá Seðlabanka Íslands. Það þarf líka að framspá tekjum. Það eru aðrir þættir sem hafa áhrif á afkomu ríkisins en bara hagspáin. Það er ekki þannig að hægt sé að taka hagspána sem svo að hún sýni sértækar breytingar sem hægt sé að fullyrða stóru myndina út frá. Hér er hægt að vera með vangaveltur sem ég held að séu hjálplegar fyrir umræðuna í haust og það sem kemur fram í álitum bæði minni hluta og meiri hluta gerir fjárlagaumræðuna ríkari en við munum ekki vita endanlegar forsendur fyrr en á næstu vikum.

Varðandi þingstubbinn þá verð ég að segja að mér þykir sérstakt að ætla sér að fara í sérstakan þingstubb um fjármálaáætlun mögulega tveimur til þremur vikum áður en endanleg fjárlög verða lögð fram. Það styttist í að fjárlög verði lögð fram. Þá getur hið pólitíska samtal átti sér stað í þessum þingsal. Ég efast ekki um að minni hlutinn muni láta í sér heyra hvað það varðar. Það sama á við um umræðu um Evrópusambandið. Þjóðin fær boltann núna, þjóðin veit sínu viti. Hér hefur átt sér stað mikil umræða um Evrópusambandið, ekki bara í tengslum við þessa þingsályktunartillögu heldur í raun frá því að þetta kjörtímabil hófst. Nú er komið að þjóðinni að melta málið og fara yfir stöðuna og það er í góðu lagi að gefa henni orðið núna.