157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

þingfundir í ágúst.

[10:36]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta svar hæstv. forsætisráðherra jaðra við rugl. Á ekki að gera þetta vegna þess að það er svo stutt í fjárlögin? Skiptir þá ekki máli að hafa forsendur réttar vegna þess að þetta er áætlun? Þetta er ekki bara hagspá Seðlabankans sem hér talar vegna þess að þetta kemur fram í álitinu sjálfu. Það kemur fram í áliti meiri hluta nefndarinnar að hér séu allar forsendur brostnar. En ég minni á að hæstv. forsætisráðherra ber pólitíska ábyrgð á ríkisstjórninni í heild og á því hvort Alþingi fái fullnægjandi upplýsingar áður en það tekur ákvarðanir, hvort sem er um ríkisfjármálin eða framtíðarstefnu þjóðarinnar. Það er ekki trúverðugt að segja að þjóðin eigi að ákveða Evrópumálin en hafna um leið því að Alþingi geti rætt þau almennilega áður en kosið er. (Forseti hringir.) Mikilvægur þáttur í allri umræðu er virðing fyrir kjósendum, virðulegi forseti.

Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra aftur: (Forseti hringir.) Er forsætisráðherra tilbúinn að sýna þá forystu að kalla Alþingi saman í ágúst svo þjóðin fái opna umræðu um Evrópumálin og Alþingi fái þá uppfærða mynd af ríkisfjármálum eða telur hún (Forseti hringir.) ásættanlegt að ríkisstjórnin afgreiði þessi mál á úreltum forsendum og án þeirrar umræðu sem (Forseti hringir.) þjóðin á rétt á?

(Forseti (IngÞ): Forseti sér sig knúinn til að minna á að ræðutími er ein mínúta í síðari umferð í óundirbúnum fyrirspurnatíma.)