þingfundir í ágúst.
Forseti. Við fylgjum samþykktu verklagi. Það er ástæða fyrir því að það er unnið samkvæmt þessu verklagi. Við fylgjum samþykktu verklagi og förum ekki að gera það að nýrri hefð hér að samþykkja fjármálaáætlun tveimur vikum áður en fjárlög eru lögð fram. Það liggur alveg fyrir. Það getur vel verið að forsendur breytist, þær gera það ár frá ári, það veit líka fólk sem hefur setið í meiri hluta, en við fylgjum samþykktu verklagi. Ábyrgðin er vissulega á okkur og hún verður á okkur í sumar, síðsumars og síðan í haust þegar við munum leggja fram fjárlög sem verða hallalaus og þá mun reyna á og við munum standa við það.
Hvað varðar frekari aðkomu þingsins er snýr að Evrópusambandsumræðunni þá verð ég bara að segja að þetta hefur ekkert með trúverðugleika að gera. Þjóðin getur alveg tekið ákvörðun um þetta mál, hvort það eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið eða ekki, án þess að þingið sé hér í umræðu í viku í ágúst. Þjóðin hefur fylgst með, hún veit vel hver skoðun minni hlutans er í þessu máli. (Forseti hringir.) En þetta er ekki mál sem ræðst af pólitísku skírteini. Það eru skiptar skoðanir líka innan flokka, þvert á flokka, milli minni hluta og meiri hluta. Þetta er ekki bara flokkspólitískt mál. Gefum þjóðinni boltann.