forsenduákvæði kjarasamninga.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að forvitnast hjá hæstv. forsætisráðherra. Nú er það þannig að í þessum þingsal höfum við ansi lengi verið að ræða stöðuna í efnahagsmálum og viðbrögð stjórnvalda við stöðunni, við stóru myndinni, við þeirri sviðsmynd sem við okkur blasir, þ.e. að horfur eru að fara niður á við og í aðra átt en ég held að við höfum öll vonað sem erum í þessum þingsal. Eitt af því sem hefur verið rætt eru forsenduákvæði kjarasamninga. Ég átti orðastað við hæstv. forsætisráðherra hér fyrr í vetur þar sem ég spurði m.a. um samtal við verkalýðshreyfinguna, eins og fram kom í efnahagstillögum Framsóknarflokksins. Þar var hæstv. forsætisráðherra skýr og sagði að það væri ekki hlutverk stjórnvalda að skipta sér af kjarasamningum á almennum markaði. Nú hefur hins vegar verið skipaður starfshópur og búið að kalla til þríhliða samtals, sem ég fagna. Við í Framsókn vorum í raun búin að kalla eftir því í vetur, einmitt til þess að reyna að miðla málum. Þetta eru þá ASÍ og SA og ríkið. Mig langar að fá að heyra það hjá hæstv. forsætisráðherra hvað breyttist. Hvað varð til þess að menn tóku U-beygju í þessu máli? Hæstv. forsætisráðherra var búin að fullyrða hér að ríkið ætti ekki að koma að þessu máli en hvað varð til þess að hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórnin skiptu um skoðun?