157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

forsenduákvæði kjarasamninga.

[10:42]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Bara svo það sé alveg skýrt þá hefur ekkert breyst hvað það varðar, og við höfum ekki skipt um skoðun hvað það varðar, að ríkið mun ekki koma að kjarasamningum hvort sem þeir eru lausir eða ekki lausir með tugmilljarða ófjármögnuðum pakka eins og var gert hér á síðustu kjörtímabilum. Það er ekki gott fordæmi sem hefur verið sett hér undanfarin tvö síðustu skipti þegar komið hefur verið að kjarasamningum með þeim hætti og engin ábyrgð hefur verið tekin á fjármögnunarhlutanum hvað það varðar. Það liggur alveg fyrir, og ég hef sagt það bæði í þjóðhagsráði og líka í þessum samtölum við ASÍ og SA, að ríkið er ekki að fara að leggja til tugmilljarða útgjöld sem verða ekki fjármögnuð í þessum samningum. Ríkið getur hins vegar, og það er það sem ríkið er að gera, verið aðili að samtali þar sem hugmyndum er velt upp sem gætu liðkað fyrir aðstæðum á vinnumarkaði. Það er margt sem kemur þar til sem hefur ekkert að gera með hrein útgjöld. Það er líka hægt að ræða ákveðna liði eins og breytingar á gjaldskrá og þess háttar ef það er samkomulag um fjármögnun á þeim úrræðum. Það liggur alveg fyrir að það þarf þá að vera eining í þessum hópi um með hvaða hætti fjármagnið verður sótt. Það er ekki hægt að knýja fram útgjöld eins og var gert á síðustu kjörtímabilum án þess að gert sé ráð fyrir því í fjármálaáætlun. Það er óábyrgt. Það leiðir einfaldlega til þess að það verður meiri verðbólga, meiri þensla, meiri hiti í hagkerfinu en ella og gerir það að verkum að verðbólga og vextir haldast hærri sem er auðvitað forsendan í þeim kjarasamningum sem núna er verið að byggja.

Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýn á að við munum sjá jákvæðar hreyfingar, þ.e. hreyfingar í rétta átt, þegar kemur að verðbólgunni. Við gripum til afmarkaðra aðgerða er sneru að olíuverði núna í upphafi sumars. Vonandi erum við að sjá til lands í olíuverðshækkunum, þ.e. að það verði viðsnúningur þar á eftir nýjustu fréttir úr heimsmálunum. En við verðum áfram aðilar að samtali en það er ekki það sama og að koma að tugmilljarða kjarapakka.