forsenduákvæði kjarasamninga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Ég verð að viðurkenna að ég er pínulítið í lausu lofti. Jú, ríkið ætlar að koma að samtalinu. Ríkið ætlar ekki að koma með neitt fjármagn inn í þessa samninga. Svo talar hæstv. forsætisráðherra um að það eigi mögulega að breyta gjaldskrá. Síðast þegar ég vissi þá kostar það peninga, virðulegur forseti.
En það sem mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra að í síðara andsvari mínu er nokkuð sem ég get alveg viðurkennt að ég er verulega hugsi yfir. Þegar við áttum hér samtal síðast einmitt undir þessum lið hér í þinginu þá sagði hæstv. forsætisráðherra: Það verða hallalaus fjárlög hvað sem það kostar. Hvað er hæstv. forsætisráðherra að meina með því, hvað sem það kostar? (Forseti hringir.) Sjáum við fram á skattahækkanir í haust? Er það plan hæstv. ríkisstjórnar? Það væri áhugavert að heyra hvernig hæstv. forsætisráðherra lítur á það. (Forseti hringir.) Er það það sem yfir okkur vofir, skattahækkanir til að ná hallalausum fjárlögum hvað sem það kostar?