157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

forsenduákvæði kjarasamninga.

[10:46]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Það sem yfir okkur vofir er ríkisstjórn sem er tilbúin að halda á ríkisfjármálunum af festu og bregðast við ef staðan kallar á það. Við forðumst ekki að taka ábyrgð og grípa til aðgerða sem þarf til að tryggja að við séum ekki að valda þenslu í hagkerfinu. Ég geri mér alveg fúslega grein fyrir því að það eru ekki auðveldar ákvarðanir og það er líklega ástæðan fyrir því að við höfum séð ríkið rekið með halla undanfarin ár vegna þess að það er mjög erfitt að standa undir þessum kröfum. Það er hins vegar það ábyrga í stöðunni vegna þess að þegar það er skuldasöfnun til staðar og við erum með háa vexti, háa verðbólgu og við erum enn þá að sjá vexti jafn háa og raun ber vitni, þá getur ríkið ekki rekið sig með halla. Þetta þekki ég vel, bæði sem stjórnmálamaður og hagfræðingur, að ríkið getur rekið sig með halla ef það er lítil verðbólga og lágt vaxtastig og ekki þensla í hagkerfinu. Það er enn þá ágætishagvöxtur í kerfinu. Þetta er það ábyrga í stöðunni. Þannig að skilaboðin eru, þegar við segjum hvað sem það kostar, að við forðumst ekki erfiðar ákvarðanir vegna þess að til lengri tíma þá er það okkur öllum fyrir bestu hér inni.