157. löggjafarþing — 126. fundur,  15. júní 2026.

samstarf við Bandaríkin.

[10:50]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og tek heils hugar undir það að hagsmunagæsla gagnvart Bandaríkjunum er mjög mikilvæg. Við eigum í miklum, reglulegum samskiptum við Bandaríkin þegar kemur að öllum stigum stjórnkerfisins. Ég get nefnt til að mynda í upphafi árs þegar hér urðu ákveðnar vendingar í alþjóðamálum, öryggismálum; þegar hér urðu ja, það voru atvik í efnahagslögsögunni á sínum tíma, m.a. þegar íslensk stjórnvöld voru í samskiptum við Bandaríkin. Satt best að segja, þrátt fyrir að það virðist vera að pólitíska samtalið milli Bandaríkjanna og Evrópu hafi breyst, þá hefur í stjórnkerfinu samtalið við Bandaríkin hér á Íslandi aldrei verið betra. Það er mjög náið samtal og ég veit til að mynda fyrir víst að á fyrri kjörtímabili núverandi Bandaríkjaforseta þá jukust þessi samskipti einmitt verulega. Við verðum hins vegar að horfast í augu við það að það er ekki endilega það sama að eiga samskipti á því sviði og því pólitíska. Það liggur inni, og hefur legið í talsverðan tíma, fundarbeiðni af minni hálfu gagnvart Bandaríkjaforseta. Ég hef reyndar hitt hann í nokkur skipti og átt bara samtöl við hann þó að það hafi ekki verið á formlegum tvíhliða fundum þar sem hefur m.a. komið fram að hann sé mjög meðvitaður um þetta sérstaka samband Bandaríkjanna við Ísland í tengslum við varnarsamninginn og hann sé enn þá í fullu gildi. Þetta fullyrti Bandaríkjaforseti við mig. Ég hef líka rætt við, með óformlegum hætti í svipaðri heimsókn, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna. Það liggur alveg fyrir að samskiptin eru til staðar, það er enginn að forðast þau. Þau eru bara með ýmsu móti á Norðurlöndunum. Í einhverjum tilvikum hafa forsætisráðherrar og forsetar heimsótt Washington. Í öðrum tilvikum hafa heimsóknir ekki átt sér stað. En samskiptin eru mjög jákvæð þegar kemur að því sem skiptir okkur öllu máli hér heima og það er auðvitað aðalmálið.