atvinnuleyfi erlendra námsmanna.
Forseti. Á undanförnum árum hefur borið á misnotkun á námsmannaleyfum hingað til lands sem hæstv. dómsmálaráðherra hefur eiginlega staðfest opinberlega að grunur sé uppi um. Menn komu hingað í nám, „háskólanám“, en voru í raun og veru bara að nota það sem leynileið inn í landið, til að koma hingað, búa og vinna. Það er auðvitað ekki eins og námsleyfi eiga að vera. Það er áríðandi að vinda ofan af þessu og ég hefði haldið að vilji stjórnvalda stæði til þess. En síðan kemur fram frumvarp um útlendinga og atvinnuréttindi sem er nú til afgreiðslu að hluta til í 2. umræðu á eftir, þar sem efnið er í raun og veru, ef maður les frumvarpið, allt á annan veg. Þess vegna vildi ég reyna að auka skilning minn á þessu í samtali hérna við hæstv. dómsmálaráðherra. Það er talað um að skila aukinni skilvirkni og fyrirsjáanleika við afgreiðslu umsókna, auka gagnsæi og auðvelda umsækjendum samskipti. Skyldubundin umsögn stéttarfélaga verði felld úr gildi og með því megi búast við að afgreiðslutími margra umsókna styttist. Breytingar á dvalarleyfum námsmanna eigi síðan að liðka umtalsvert fyrir atvinnuþátttöku þess hóps. Það er felld brott undantekningarlaus skylda til að leita fyrst að vinnuafli innan Íslands og EES áður en farið er út fyrir landsteinana. Ég viðurkenni að ég furða mig í raun og veru á orðalaginu í þessu frumvarpi þar sem ég taldi alla vega að markmið stjórnvalda væri að ná frekari stjórn á þessu og takmarka leið fólks inn í landið á þessum forsendum. Það væri gott ef hæstv. dómsmálaráðherra gæti útskýrt hvort svo sé eður ei og jafnvel ef maður gæti fengið hæstv. dómsmálaráðherra til að taka afstöðu til breytingartillögu minni hluta allsherjarnefndar þar sem talað er um að skilyrða það að menn komi hingað utan EES til að vinna við að þeir séu með 90% af miðgildislaunum í landinu. Þannig getum við tryggt að þeir sem eru að koma hingað utan EES séu að gera það á grundvelli raunverulegrar þarfar fyrir sérhæfða starfskrafta. Þetta er að sænskri fyrirmynd.