atvinnuleyfi erlendra námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Mig langar fyrst til að nefna þetta: Þegar þessi ríkisstjórn tók við blöstu við afleiðingar stefnuleysis liðinna ára. Ég fór inn í þetta verkefni með það að markmiði að við myndum ná hér stjórn á málaflokknum með heildarendurskoðun á honum. Við höfum farið í heildarendurskoðun eða breytt regluverki hvað varðar alþjóðlega vernd. Ég kem með frumvarp í haust sem verður heildarendurskoðun á dvalarleyfiskafla útlendingalaga og það er starfandi hópur sem hefur það verkefni með höndum að endurskoða reglur okkar um ríkisborgararétt. Ríkisstjórnin ætlar ekki að gera það sem hefur gerst á liðnum árum og tala bara um það fólk sem hingað kemur á grundvelli alþjóðlegrar verndar. Við höfum burði til þess að vinna saman að því, þrír flokkar, að setja hér stefnu sem ég ætla að leyfa mér að segja að muni standast tímans tönn, að við komumst upp úr þeim hjólförum að vera eilíflega að setja plástra á. Þetta höfum við gert með því að afnema svokallaða 18 mánaða reglu. Þetta höfum við gert með samþykkt laga um afturköllun verndar. Þetta höfum við gert með frumvarpi um sterkara eftirlit Schengen, það hefur verið samþykkt. Þetta höfum við gert með því að festa lög um að flugfélögum beri skylda til að afhenda farþegalista. Þetta höfum við gert með lagasetningu um brottfararstöð, sem Miðflokkurinn studdi að vísu ekki. Þetta höfum við gert með frumvarpi sem verður afgreitt hér á næstu dögum um sameiningu atvinnu- og dvalarleyfa. Þetta höfum við gert með frumvarpi um sterkari Dyflinnarreglugerð. Þetta höfum við gert með samþykkt laga um brottvísun erlendra fanga og við höfum gert þetta með því að hækka dvalarleyfisgjöld. Það sem við erum að gera: Við ætlum ekki að leyfa jöðrunum að stýra umræðunni. Við ætlum að vinna eftir ábyrgri en klassískri stefnu.
Hvað varðar það sem hv. þingmaður nefnir um námsmannaleyfin er það þannig að það er verið að herða skilyrði með því að það þarf að sýna fram á fullnægjandi námsárangur, fjölskyldusameiningarreglur eru hertar, (Forseti hringir.) dvalarleyfi eftir nám er stytt og diplómanám er áfram heimilt en því fylgja ekki réttindi til atvinnuþátttöku eða fjölskyldusameiningar. Býsna skýr stefna; fólk er velkomið hingað til lands, sannarlega, (Forseti hringir.) sé það að koma hingað raunverulega til að sinna námi.