atvinnuleyfi erlendra námsmanna.
Virðulegur forseti. Það var ánægjulegt að hlýða á yfirferð hæstv. ráðherra yfir litlu útlendingamálin sem verið hafa og maður dregur ekkert úr því. En ég var að spyrja um frumvarpið sem við erum að taka til afgreiðslu hér á eftir. Þar er kveðið á um það, á fleiri en einum stað í texta frumvarpsins, að verið sé að liðka umtalsvert fyrir atvinnuþátttöku námsmanna og það er að þeim þætti sem spurning mín til hæstv. ráðherra beinist. Hvert er markmið frumvarpsins? Síðan segir hæstv. ráðherra að það snúist um að herða skilyrði og ég er sammála því, ég hef lesið þetta frumvarp og unnið náið með það, að það eru ákveðnir þættir sem eru til bóta en aðrir ganga út á að rýmka aðgengi námsmanna, erlendra námsmanna, að vinnu hér á Íslandi. Það hefur verið vandamál að menn nota námsleyfin til þess að komast inn í landið, til þess að fara síðan að vinna þegar við erum ekki með það afmarkað í okkar stefnu að vera með opið fyrir fólk utan EES að koma hingað og vinna. Það að liðka fyrir atvinnuþátttöku námsmanna fer því í öfuga átt við þá stefnu sem hæstv. ráðherra lýsir. Síðan nefni ég aftur (Forseti hringir.) þessa 90% tillögu mína, um að skilyrða að launin hjá þessu fólki nemi a.m.k. 90% af miðgildislaunum, þannig að við getum vitað að það sé raunveruleg þörf á þessum sérhæfðu starfskröftum.