157. löggjafarþing — 127. fundur,  16. júní 2026.

fjölmiðlar.

600. mál
[16:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Guðmundur Ari Sigurjónsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38/2011.

Með frumvarpinu er lagt til að stuðningur við einkarekna fjölmiðla verði festur í sessi til fimm ára, sem byggi í meginatriðum á eldra stuðningskerfi sem verið hefur við lýði frá árinu 2021, en þó lagt til að skerpa á einstaka skilyrðum. Þá felur frumvarpið í sér að veittur verði viðbótarstuðningur til fjölmiðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu um allt land og uppfylla sértæk skilyrði.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega að tilefni stuðnings við einkarekna fjölmiðla má rekja til þeirra breytinga sem orðið hafa á umhverfi fjölmiðla á síðustu árum með tilkomu nýrrar tækni og alþjóðlegrar samkeppni sem hefur haft neikvæð áhrif á möguleika innlendra fjölmiðla til tekjuöflunar.

Meiri hlutinn telur brýnt að bregðast við þróun á fjölmiðlamarkaði og styðja við lýðræðishlutverk einkarekinna fjölmiðla með því að tryggja áframhaldandi stuðning sem byggist á því almenna stuðningskerfi sem lögfest var 1. janúar árið 2021 að norrænni fyrirmynd. Ákvæði í gildandi lögum um stuðning við einkarekna fjölmiðla féllu úr gildi 1. janúar 2026.

Meiri hlutinn telur mikilvægt að kveða á um stuðning til næstu fimm ára til að tryggja með því aukinn fyrirsjáanleika í rekstri fjölmiðla.

Meiri hlutinn áréttar jafnframt að frumvarpið er liður í heildstæðri fjölmiðlastefnu og framtíðarsýn stjórnvalda á sviði fjölmiðla sem er að fólk eigi greiðan aðgang að fjölbreyttum, ábyrgum og sjálfstæðum fjölmiðlum sem miðla fréttum, samfélagsumræðu og menningu og efla lýðræðislega umræðu.

Þá fjallaði nefndin einnig um markmiðið um stuðning við einkarekna fjölmiðla en í a-lið 1. gr. frumvarpsins kemur fram að markmið stuðnings við einkarekna fjölmiðla sé að efla ritstjórnir þeirra í því skyni að styðja við fréttaþjónustu, lýðræðislega umræðu og treysta stöðu íslenskrar tungu með því að veita fjölmiðlum árlegan fjárhagslegan stuðning vegna kostnaðar við að vinna fréttir og fréttatengt efni.

Í umsögn fjölmiðlanefndar er bent á að búið sé að fella á brott markmiðsákvæði laga nr. 66/2025, sem féllu úr gildi 1. janúar 2026, og að umfjöllun um samfélagsleg málefni falli undir gildissvið laganna ásamt fréttum og fréttatengdu efni. Í því felist í raun þrenging á gildissviði stuðningskerfisins. Þá er vísað til þess að gagnlegt væri ef skilgreining á hugtökunum fréttir og fréttatengt efni kæmi fram í lagatexta frumvarpsins og að mikilvægt sé að skýrt sé hvaða efni falli þar undir, m.a. sé óljóst hvort umfjöllun um íþróttir, vísindi, menningu, lífsstíl og trúmál teljist til frétta og fréttatengds efnis.

Í minnisblaði frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu frá 28. maí 2026 kemur fram að gert sé ráð fyrir því að almenn skilgreining á hugtökunum fréttir og fréttatengt efni komi fram í reglugerð, líkt og síðustu ár en þó með nokkuð ítarlegri hætti. Ávallt muni þó verða einhver markatilvik þar sem úthlutunarnefnd mun þurfa að leggja faglegt mat á það hvort fjölmiðlar falli undir gildissvið laganna. Það eigi m.a. við um fjölmiðla sem fjalla eingöngu um íþróttir. Það liggur fyrir að íþróttafréttir sem eru hluti af almennri fréttaþjónustu hafa verið taldar til fréttatengds efnis en að leiksýningar samhliða beinum útsendingum frá keppnisíþróttum og umræður um íþróttakappleiki teljist almennt ekki til fréttatengds efnis. Að öðru leyti muni þurfa að líta til þess hvort umfjöllun um vísindi, menningu, lífsstíl og fleira teljist hluti af ritstjórnarefni þar sem megináhersla er á fréttaþjónustu fjölmiðils.

Meiri hlutinn tekur undir markmið frumvarpsins um að efla ritstjórnir einkarekinna fjölmiðla í því skyni að styðja við fréttaþjónustu, lýðræðislega umræðu og treysta stöðu íslenskrar tungu og að nánari skilgreiningar verði útfærðar í reglugerð ráðherra með hliðsjón af fyrri framkvæmd.

Nefndin fjallaði að auki um viðbótarstuðning til fjölmiðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu. Með frumvarpinu er lagt til að veittur verði viðbótarstuðningur til fjölmiðla sem uppfylla sérstök skilyrði, þar á meðal um að sinna daglegri fréttaþjónustu á landsvísu sem talist getur til almennrar fréttaþjónustu í almannaþágu um allt land. Gerðar verða ríkari kröfur en vegna almenna stuðningskerfisins, m.a. um tiltekinn fjölda blaðamanna á fréttaritstjórn og viðbragðsgetu allan sólarhringinn, daglega fréttamiðlun á landsvísu, fjölbreytt efnistök með almenna og víðtæka skírskotun, kosningaumfjöllun á landsvísu, lágmarkshlutfall ritstjórnarefnis á móti auglýsingum á prent- og vefmiðlum og lágmarkshlutfall frumunnins ritstjórnarefnis á prent- og vefmiðlum.

Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir við þau skilyrði sem sett eru fyrir viðbótarstuðningi við fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu. Meðal annars var bent á að það gæti reynst tímafrekt fyrir fjölmiðla sem og fjölmiðlanefnd að leggja mat á það hvort því skilyrði sem fram kemur í 4. tölulið e-liðar 1. gr. fyrir viðbótarstuðningi sé fullnægt, þ.e. um að ritstjórnarefni prent- og vefmiðils sé að lágmarki 50% efnis á móti auglýsingum og a.m.k. 25% ritstjórnarefnis prent- og vefmiðils sé efni sem er frumunnið á ritstjórn. Þá komu fram athugasemdir við það skilyrði 5. töluliðar e-liðar 1. gr. fyrir viðbótarstuðningi að 20 blaðamenn, blaðaljósmyndarar og myndatökumenn, að lágmarki starfi á fréttaritstjórn. Jafnframt komu fram sjónarmið um hvort það að styrkja ráðandi aðila á fjölmiðlamarkaði gæti falið í sér samkeppnishömlun sem væri andstæð reglum EES-samningsins.

Meiri hlutinn hefur skilning á þeim ábendingum sem komu fram varðandi viðbótarstuðning en tekur jafnframt undir sjónarmið í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, dagsettu 28. maí 2026. Þar bendir ráðuneytið m.a. á að til greina komi að skýra nánar framkvæmd eftirlits varðandi skilyrði fyrir viðbótarstuðningi með leiðbeiningum í reglugerð. Hvað varðar viðmið um fjölda í starfi á ritstjórn fjölmiðils taki það mið af þeirri áherslu stjórnvalda að styðja við kjarnastarfsemi fjölmiðla, sem er blaða- og fréttamennska sem fram fer á fréttaritstjórnum fjölmiðla. Skilyrðin eru sett fram með það að markmiði að fjölmiðlar sem hljóti viðbótarstuðning hafi burði til að veita almenna og fjölbreytta daglega fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu, t.d. burði til að manna fréttavaktir, sækja blaðamannafundi, bregðast fljótt við á öllum tímum sólarhrings og miðla m.a. upplýsingum um óvænta atburði, t.d. náttúruhamfarir og aðra vá sem kallar á skjót viðbrögð fjölmiðla í almannaþágu.

Þá er bent á að frumvarpið hafi verið tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. Í tilkynningu ráðuneytisins til ESA hafi m.a. verið vísað til sérstöðu innlends fjölmiðlamarkaðar. Innlendir fjölmiðlar starfi á óvenju smáum markaði og málsvæði með afar fáum notendum sem geri þeim erfitt að fjármagna rekstur sinn. Þegar við bætist samkeppni frá alþjóðlegum fjölmiðlum, gervigreind og tæknirisum með mikið fjárhagslegt bolmagn sé ljóst að staða allra innlendra fjölmiðla sé sérstaklega viðkvæm og á það einnig við um þá fjölmiðla sem teljast stærstir á innlendum fjölmiðlamarkaði.

Jafnframt fjallaði nefndin um aðgengi að efni fjölmiðla fyrir fólk með fötlun. ÖBÍ réttindasamtök lýstu yfir vonbrigðum með að ekki væru gerðar ríkari kröfur um aðgengi að efni fjölmiðla fyrir fatlað fólk, m.a. með kröfum um textun á myndefni, hljóðlýsingu á völdu efni eftir því sem við á og aðgengilegu viðmóti á vef og snjalltækjalausnum.

Í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, dagsettu 28. maí 2026, er bent á að önnur ákvæði laga um fjölmiðla séu í gildi samhliða lögfestingu frumvarpsins. Þar á meðal sé 30. gr. laganna um aðgengi sjón- og heyrnarskertra að myndmiðlunarefni í gildi. Þá gilda sérlög um Ríkisútvarpið þar sem ítarlegri kröfur um textun og táknmálstúlkun er að finna í 6. gr. Auk þess eru ákvæði um aðgengismál í þjónustusamningi ráðherra við Ríkisútvarpið sem útfærð eru í aðgengisstefnu sem Ríkisútvarpinu ber að setja á grundvelli þjónustusamnings.

Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að tryggja aðgengi að efni fjölmiðla. Á grundvelli gildandi laga um fjölmiðla eru þær kröfur gerðar til fjölmiðla sem miðla myndefni að þeir geri þjónustu sína aðgengilega sjón- og heyrnarskertum, auk þeirra sem búa við þroskaröskun. Þá eru gerðar enn ríkari kröfur um aðgengi á vegum Ríkisútvarpsins um fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu.

Meiri hlutinn leggur þó ekki til að kveða á um að það verði gert að skilyrði fyrir veitingu styrks.

Meiri hlutinn leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar skipunartímabil úthlutunarnefndar. Í umsögn fjölmiðlanefndar er bent á að í b-lið 1. gr. frumvarpsins komi fram að skipunartímabil úthlutunarnefndar sé til 31. janúar 2030. Bent er á að væntanlega sé þar um misritun að ræða og er það staðfest í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis, dagsettu 28. maí 2026.

Meiri hlutinn leggur því til breytingu þess efnis að kveðið verði á um að skipunartímabil úthlutunarnefndar sé til 31. desember 2030 til samræmis við það að ákvæði X. kafla B falla úr gildi 1. janúar 2031, sbr. 2. gr. frumvarpsins.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar mat á skuldastöðu gagnvart ríkissjóði. Í d-lið 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um skilyrði fyrir stuðningi við einkarekna fjölmiðla. Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir við breytingar á tilteknum skilyrðum fyrir rekstrarstuðningi. Í 7. tölulið ákvæðisins kemur fram það skilyrði fyrir rekstrarstuðningi að fjölmiðlaveita sé ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattasektir sem komnar voru á eindaga fyrir lok næsta árs á undan. Þá hafi verið bætt við ákvæðið nýjum málslið um að við mat á skuldastöðu gagnvart ríkissjóði skuli miðað við þá dagsetningu þegar umsókn berst úthlutunarnefnd. Í umsögn fjölmiðlanefndar er bent á að þetta orðalag feli í sér þrengingu miðað við fyrri framkvæmd úthlutunarnefndar og leggur hún til að fallið verði frá þessari viðbót.

Að teknu tilliti til ábendingar fjölmiðlanefndar er í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis lögð til breyting á orðalagi ákvæðisins og leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að fella brott 2. málslið 7. töluliðar d-liðar 1. gr.

Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar dagsetningu umsóknarfrests. Í umsögn fjölmiðlanefndar er lagt til að fallið verði frá því að kveða á um umsóknarfrest í 1. mgr. 62. gr. f, þar sem fram kemur að umsókn um rekstrarstuðning skuli berast úthlutunarnefnd eigi síðar en 1. júní ár hvert samkvæmt frumvarpinu. Þess í stað verði kveðið á um umsóknarfrestinn í reglugerð til að tryggja aukinn sveigjanleika, líkt og gert var í eldri lögum.

Að lokum er lögð til breyting er varðar athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA. Í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins kemur fram að frumvarpið hafi verið tilkynnt til Eftirlitsstofnunar EFTA á grundvelli reglna um ríkisstyrki. Eftir framlagningu frumvarpsins kom ESA því á framfæri að gera þyrfti tilteknar úrbætur, nánar tiltekið að skilgreina hámark á fjárframlagi sem hver og einn umsækjandi gæti hlotið, komi til þess að fjárframlög verkefnisins verði hærri en samanlagður stuðningshæfur rekstrarkostnaður umsækjanda en í því tilfelli skiptast afgangsfjármunir milli umsækjenda í réttum hlutföllum við kostnað þeirra. ESA lagði til að hámark samanlagðra fjárframlaga vegna almenns stuðnings og viðbótarstuðnings yrði skilgreint á bilinu 40–60% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði fjölmiðla.

Í ljósi framangreinds leggur meiri hlutinn til viðeigandi breytingar á ákvæðum frumvarpsins um að kveða á um tiltekið hámark eða þak á fjárframlagi sem hver og einn umsækjandi getur hlotið.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Grímur Grímsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sandra Sigurðardóttir.

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir góða vinnu við gerð þessa frumvarps. Þetta er held ég í þriðja sinn sem við leggjum fram sambærilegt frumvarp varðandi stuðning við einkarekna fjölmiðla. Ég fagna því að við séum núna að lengja þennan gildistíma þannig að við séum ekki að sýsla við þessa styrki ár frá ári. Þetta eyðir óvissu fyrir þessa einkareknu fjölmiðla og sparar líka þinginu tíma því að þótt við höfum kannski skiptar skoðanir á því hversu mikið við viljum að einkareknir fjölmiðlar fái í stuðning frá hinu opinbera þá hefur það komið fram við afgreiðslu mála hér að við erum öll meðvituð um það að í núverandi umhverfi er einhvers konar stuðningur frá hinu opinbera nauðsynlegur, bæði fyrir staðbundnu fjölmiðlana úti um allt land og líka stóru einkareknu fjölmiðlana.

Við erum með lítið málumhverfi hér á Íslandi. Við viljum standa vörð um íslenska tungu, íslenska menningu. Við viljum halda utan um sögurnar okkar sem sagðar eru úti um allt land, að hér sé verið að halda utan um fréttir. Við fundum t.d. fyrir því í sveitarstjórnarkosningunum sem eru nýliðnar hversu mikilvægt það var að við vorum með fjölbreytta fjölmiðla úti um allt land þar sem frambjóðendur til sveitarstjórna voru að skrifa sínar greinar og þar sem kosningaumfjöllun fór fram um allt land. Til dæmis voru fjölmiðlar sem sinntu þessu lýðræðishlutverki, voru með kosningaumfjöllun, í nánast öllum sveitarfélögum landsins, bæði Ríkisútvarpið og einkareknir fjölmiðlar.

Þetta er gríðarlega mikilvægt í lýðræðisþjóðfélagi. Því fagna ég mjög að þetta frumvarp sé komið fram og að við séum að lengja þennan frest til að auka fyrirsjáanleikann og séum ekki að fara að leggja aftur fram sambærilegt frumvarp á næsta þingi. Einnig að við séum að leggja til þá breytingu að þeir fjölmiðlar sem sinna þessu lýðræðislega hlutverki, sinna fréttaþjónustu allan sólarhringinn úti um allt landið, allt árið um kring, fái sérstakan viðbótarstuðning svo við séum að leggja rækt við tungumálið okkar, menninguna okkar og lýðræðið á Íslandi.