fundur í utanríkismálanefnd.
Frú forseti. Mig langaði hér að vekja athygli á og leita liðsinnis virðulegs forseta því að núna þegar tveir, kannski þrír dagar eru eftir af þingstörfum þá eru áform uppi um að nefndir muni funda að einhverju marki. Ástæða þess að ég nefni þetta hér er að það birtist í Spursmálum Morgunblaðsins mjög áhugavert viðtal við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, þar sem hann lýsti því með hvaða hætti IPA-styrkir og ýmis önnur aðstoð Evrópusambandsins hefði flætt hér yfir sem hluti af aðlögunarstuðningi við Ísland þegar hin mögulega endurvakta umsókn var til vinnslu á þeim tíma er Jóhanna Sigurðardóttir, þáverandi hæstv. forsætisráðherra, fór fyrir ríkisstjórn. Mig langaði að benda á að það sé svigrúm, a.m.k. fyrir hv. utanríkismálanefnd, að koma til fundar því að mér skilst að fyrrverandi hæstv. ráðherra, Jóni Bjarnasyni, hafi verið svona hálfhent út öfugum af nefndarfundi eftir mjög stuttan tíma sem hann hafði til að fara yfir þessi sjónarmið með utanríkismálanefnd. Í ljósi þess hversu tregur meiri hlutinn hefur verið til þess að opna hér á þingstubb í ágúst (Forseti hringir.) til að ræða mál sem kunna að koma upp þá finnst mér skynsamlegt að forseti hlutist til um það að þetta verði rætt, ef ekki hér í þingsal (Forseti hringir.) þá a.m.k. í hv. utanríkismálanefnd.