157. löggjafarþing — 128. fundur,  18. júní 2026.

fundur í utanríkismálanefnd.

[11:03]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Frú forseti. Það hefur ýmislegt gengið á í fundarstjórn forseta í morgun. Ekki ætla ég að saka forseta um einhverja tæknilega örðugleika sem hér urðu. Hér hafa hins vegar verið gríðarlegar atkvæðaskýringar sem hafa ekkert snúist um atkvæðaskýringar heldur hafa einstakir þingmenn og ráðherrar notað hér tækifærið til að ráðast á aðra stjórnmálaflokka eins og umræða sé. Ég hélt að forseti þingsins ætti að stöðva slíkt vegna þess að það kallar auðvitað á að menn fari hér í fundarstjórn forseta eða beri af sér sakir eða geri tilraunir til þess að koma hérna og jafna málið. Ég vil bara hvetja forseta til að hafa stjórn á hv. meirihlutaþingmönnum og ráðherrum. Kannski ættu menn, talandi um félagslegan jöfnuð og almenna húsnæðiskerfið, að lesa ágæta fréttaskýringu Moggans í dag og ég bendi hæstv. forseta á það líka.