157. löggjafarþing — 128. fundur,  18. júní 2026.

fundur í utanríkismálanefnd.

[11:04]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég sé ástæðu til að taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni varðandi það hvernig þingið hefur haldið á Evrópusambandsmálunum í ljósi þess sem hefur komið í ljós síðan málinu var hraðað hér í gegn. Meira og minna allar grunnstoðir í málflutningi þingmanna hæstv. ríkisstjórnar og hv. meiri hluta hér eru fallnar, hafa verið afsannaðar. Nýjasta dæmið er einmitt fyrrnefnt viðtal við Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og lykilmann í þeirri atburðarás sem átti sér stað þegar sú umsókn varð til sem núna er reynt að endurvekja. Jón Bjarnason fékk að líta við á fundi utanríkismálanefndar en hann var vart sestur þegar hann var beðinn um að fara aftur og öðrum hv. þingmönnum bannað að leggja fyrir hann frekari spurningar. Hvort sem það var vegna þess að hann var að upplýsa um hluti sem hentaði ekki ríkisstjórninni að fá að heyra (Forseti hringir.) eða einfaldlega sá flýtir sem var á þessu máli skal ég ekki segja, en fyrst hæstv. forseti telur nægan tíma fram á sumarið til að halda áfram þingstörfum þá tel ég þetta mál mikilvægast af öllum.