fundur í utanríkismálanefnd.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Ég var nú í hv. utanríkismálanefnd þegar títtnefndur einstaklingur kom og reyndar annar ráðherra úr sömu ríkisstjórn og það var beiðni okkar í stjórnarandstöðunni að þeir yrðu lengur ef við fengjum aftur tækifæri til að spyrja. Það var ekki orðið við því. Það er auðvitað skrýtið, virðulegi forseti, þegar við erum að ræða mál sem eiga heima í þinginu og varða þjóðarhag, að við fáum upplýsingarnar úr fjölmiðlum en ekki úr hv. þingnefndum. En það er auðvitað tækifæri til að laga þetta, alla vega að reyna að bjarga því sem bjargað verður. Það eru augljós rök fyrir því, virðulegi forseti, að forseti grípi hér inn í og sjái til þess að að þetta mál verði rætt í þeirri nefnd sem það á að vera rætt í.