heildarendurskoðun lagaumgjarðar og framkvæmdar veitingar ríkisborgararéttar.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar fyrir þingsályktunartillögu um heildarendurskoðun lagaumgjarðar og framkvæmdar veitingar ríkisborgararéttar.
Veiting ríkisborgararéttar er meðal verkefna Alþingis á grundvelli 1. mgr. 66. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Dómsmálaráðherra hefur nýlega stofnað þriggja manna starfshóp til að greina gildandi lög og skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar. Markmið starfshópsins er að fá heildstæða yfirsýn yfir þróun umsókna, framkvæmd við veitingu ríkisborgararéttar og hvort ástæða sé til breytinga á lagaumhverfi eða verklagi. Starfshópnum hefur einnig verið falið að meta hvort ástæða sé til breytinga og þá að hvaða leyti, greina helstu áskoranir í málaflokknum og koma með tillögur að úrbótum á lagaumhverfi og stjórnsýslu.
Með þingsályktunartillögunni er lagt til að dómsmálaráðherra feli starfshóp að endurskoða heildstætt lagaumgjörð og framkvæmd veitingar ríkisborgararéttar, hvort sem hann er veittur með lögum eða stjórnvaldsákvörðun. Ráðherra getur þá útvíkkað verkefni starfshópsins þannig að einnig verði litið til þeirrar lagaumgjarðar sem er um veitingu ríkisborgararéttar með lögum og samspili þessara tveggja leiða með það að markmiði að tryggja betur jafnvægi þeirra á milli þar sem litið er til þeirra sjónarmiða sem lágu til grundvallar við lagasetningu og lagabreytingar sem orðið hafa. Tryggt eigi að vera að áfram verði unnt að veita ríkisborgararétt með lögum og með stjórnvaldsákvörðun en að jafnaði skuli stjórnsýsluleið nýtt áður en umsókn er beint til Alþingis.
Talsverð umræða hefur verið um mikilvægi endurskoðunar bæði á þessu og síðasta þingi en einnig fyrri kjörtímabilum. Með því að fela dómsmálaráðherra verkefnið er tryggð heildstæð endurskoðun þeirra leiða sem eru færar við að veita ríkisborgararétt. Upplýsa skal allsherjar- og menntamálanefnd um verkefnið og drög að niðurstöðum. Verði þessi vinna til þess að frumvarp verði lagt fram mun það fá þinglega meðferð og rýni í allsherjar- og menntamálanefnd og endanleg ákvörðun um lagabreytingar verða eftir sem áður hjá Alþingi.
Ég legg til að málið gangi beint til síðari umræðu og ekki til nefndar. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.