veiting ríkisborgararéttar.
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar.
Allsherjar- og menntamálanefnd bárust 166 umsóknir um ríkisborgararétt á vorþingi 157. löggjafarþings en skv. 1. mgr. 6. gr. laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100/1952, veitir Alþingi ríkisborgararétt með lögum.
Nefndin leggur til að umsækjendum á 14 umsóknum verði veittur ríkisborgararéttur að þessu sinni auk fjögurra barna umsækjenda. Lagt er til að einum einstaklingi til viðbótar sé veittur ríkisborgararéttur vegna misritunar í lögum nr. 8/2026. Allsherjar- og menntamálanefnd leggur því til að 19 einstaklingar öðlist ríkisborgararétt að þessu sinni.
Verði frumvarpið samþykkt óska ég þessum einstaklingum innilega til hamingju.
Ég vil þakka hv. þingmönnum Víði Reynissyni, Jóni Pétri Zimsen og Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir gott samstarf í undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar sem fór yfir umsóknir. Þá færi ég hv. allsherjar- og menntamálanefnd þakkir.