frestun á fundum Alþingis.
Hv. alþingismenn. Störfum 157. löggjafarþings verður nú brátt frestað og fram undan er þinghlé og sumarleyfi. Þinghaldið hófst með hefðbundnum hætti 9. september síðastliðinn og lýkur nú viku síðar en starfsáætlun gerði ráð fyrir. Þingfundir voru 131 talsins og fastanefndir héldu 500 fundi. Þetta hefur verið starfsamt þing og afkastamikið. Fyrir áhugasama verður tölfræði um þingstörfin aðgengileg á vef þingsins.
Tölfræði um afgreidd mál segir sína sögu og hún er gagnleg svo langt sem hún nær. Forseti leyfir sér þó að benda á að árangur þings verður ekki best metinn með tölunum einum, heldur ekki síður af því hvort okkur hafi tekist „að feta farsældarslóð“, svo vitnað sé í ljóð Braga Valdimars Skúlasonar sem fjallkonan fór með á nýliðnum þjóðhátíðardegi. Gæði vega þyngra en magn.
Mikil endurnýjun þingheims einkenndi úrslit síðustu þingkosninga. Á undanförnum mánuðum hurfu einnig fjórir þingmenn með mikla reynslu á vit annarra viðfangsefna og nýir voru boðnir velkomnir í þeirra stað. Þannig eru 33 þingmenn nú að ljúka sínu fyrsta heila löggjafarþingi, yfir heilan vetur, og fjórir nýir þingmenn hafa tekið sæti frá áramótum. Störf þingmanna eru margþætt og langt frá því að vera einföld en hinir nýju þingmenn hafa tekist snöfurmannlega á við hlutverk sitt og sinnt því með sóma.
Aukin reynsla þingmanna skilaði sér í öflugu nefndastarfi í vetur og það er fagnaðarefni. Af hlutverkum Alþingis er lagasetning viðamest og fátt skiptir meira máli en að til hennar sé vandað en sú vinna fer að miklu leyti fram innan nefnda. Það greiddi einnig fyrir störfum þingsins í vetur að mál frá ríkisstjórn bárust flest áður en framlagningarfrestur rann út. Það er góður grunnur að byggja á í framhaldinu.
Það er alltaf mikilvægt að umgjörð þingstarfanna sé skýr og fyrirsjáanleg. Þingstörfin eru krefjandi og hlutverk þingmanna er margþætt, bæði hér inni í þessu húsi og utan þess. Alþingi starfar í umboði kjósenda og ber sjálft ábyrgð á því hvernig það hagar störfum sínum. Enginn annar en þingið sjálft getur sett reglur um starfsemi þess eða hvernig skuli stuðlað að góðum og bættum starfsháttum. Þess vegna hvílir sú skylda á okkur sem hér störfum að meta hvort skipulag og starfshættir þingsins þjóni hlutverki þess sem skyldi.
Þetta er ekki ný viðleitni. Forsetar Alþingis hafa, hver á sínum tíma, hugað að starfsháttum þingsins. Séu starfshættir í ólagi eða í óefni komnir ber okkur að staldra við, enda aðal þeirra sem taka störf sín alvarlega að hafa ávallt vakandi auga með starfseminni. Í þessum anda hef ég kynnt fyrir þingflokksformönnum tillögu að skipulagi þingstarfa á næsta löggjafarþingi, á haustþingi. Sú tillaga verður hugsuð og vonandi eitthvað rædd í sumar en þráðurinn tekinn upp að nýju í lok sumars áður en þing kemur aftur saman.
Hv. alþingismenn. Í þingsal getum við tekist á af fullri einurð og stundum af málefnalegri hörku. Það er sjálfur hornsteinn lýðræðisins og lýðræðislegrar umræðu. Slík umræða beinist að málstað en ekki að manni. Umræða í samfélaginu, sérstaklega á vefmiðlum, á það til að snúast meira um fólk en málefni og hún getur verið óvægin. Þegar þátttaka í almennri samfélagsumræðu verður fráhrindandi og jafnvel hættuleg hugsar fólk sig tvisvar um áður en það gengur til leiks og þá er það lýðræðið sjálft sem ber skaðann. Það á að vera áhyggjuefni okkar allra, óháð flokkum og skoðunum, ef það gerist.
Bæði starfshættir þingsins, sem og orðræða í samfélaginu um þingstörfin og þau sem hér starfa, þurfa að vera með þeim hætti að þátttaka í samfélagsmálum og stjórnmálum laði áfram að sér fólk með fjölbreyttan bakgrunn og ólíka sýn; fólk sem býður fram krafta sína og hefur metnað til að láta gott af sér leiða fyrir þau sem hér búa. Starfshættir þingsins eru verkefni í okkar höndum; orðræðan í samfélaginu er það ekki á sama hátt en hún er ekki síður okkar mál og þar getum við alþingismenn gengið á undan með góðu fordæmi.
Hv. þingmenn. Sá ánægjulegri atburður varð hér á Alþingi á dögunum að þingheimur samþykkti einum rómi tillögu forsætisnefndar um það hvernig minnast skuli þess að árið 2030 verða ellefu aldir liðnar frá stofnun Alþingis. Þessara merku tímamóta verður minnst með fjölbreyttum og margradda hætti.
Í dag, 19. júní, fögnum við því að 111 ár eru frá því að konur, á þeim tíma fertugar og eldri, fengu kosningarrétt, en 19. júní 1915 undirritaði Kristján X. konungur lög um breytingu á stjórnarskrá Íslands sem m.a. færði konum fertugum og eldri kosningarrétt til Alþingis. Er dagurinn í dag iðulega nefndur kvenréttindadagurinn og okkur ber að halda hann hátíðlegan.
Ágætu alþingismenn. Ég þakka ykkur, hv. þingmenn, fyrir samveruna og samstarfið á þessu þingi. Varaforsetum þakka ég sérstaklega góða samvinnu við stjórn þinghaldsins og formönnum þingflokka þakka ég afar gott samstarf. Starfsfólki skrifstofu Alþingis færi ég bestu þakkir fyrir prýðilega frammistöðu og ljómandi samstarf.
Undir lok maí samþykkti forsætisnefnd starfsáætlun næsta löggjafarþings, þess 158. í röðinni. Það verður sett þriðjudaginn 8. september með hefðbundnum hætti og ég hlakka til samfunda við ykkur þá.
Ég óska öllum sem nú halda heimleiðis að loknu þinghaldi góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu.
Njótum íslenska sumarsins og megi gæfan fylgja ykkur öllum þar til við hittumst næst.