fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég verð að byrja á að þakka þingmanninum fyrir ræðuna. Ég veit að við erum sammála um margt. Við verðum að ná jafnvægi í ríkisrekstri og ég tel að við deilum því markmiði að ná hallalausum fjárlögum, sem við verðum að ná. Ég heyri að hann hefur áhyggjur af þeim aðgerðum sem eru kynntar í frumvarpinu og þá sérstaklega það sem birtist í bandorminum. Það er hækkunin á kílómetragjaldinu sem er í raun og veru lækkun frá áætlun fyrri ríkisstjórnar, hún var hærri en við lækkuðum þetta og við erum enn að stefna að 1,7% af vergri landsframleiðslu, ég vil nefna það. Svo talar hann um að innviðagjöldin ættu ekki að taka krónutöluhækkunum. Þá spyr ég um sanngirni gagnvart öðrum þeim gjöldum sem ríkið er að setja á. Af hverju ætti innviðagjald að vera undanþegið? Hver er sanngirnin í því? Ætti ekki að gilda það sama fyrir öll gjöld ríkisins? Mig langar að velta því upp við þingmanninn.
Hann nefnir líka baðlónin sem eru fjölmörg á landsbyggðinni en auðvitað líka á höfuðborgarsvæðinu. Ég skil vel að hann hafi áhyggjur af atvinnustarfsemi í sínu kjördæmi, það skil ég mætavel. Það sem ég er líka að velta fyrir mér, af því að ég nefni sanngirnina, er að þegar ég fer í bíó með barnið mitt þá borga ég 24% virðisaukaskatt af bíómiðanum fyrir mig og barnið. Af hverju ætti ég að borga 11% virðisaukaskatt fyrir að fara með sama barn í baðlón? Hver er sanngirnin í því? Ég velti því upp við þingmanninn. Svo vil ég bara spyrja: Er hann ekki sammála mér í því að það sé mikilvægt fyrir heimili þessa lands og fyrirtæki að ná hallalausum fjárlögum? Ef við viljum ekki fara þessa blönduðu leið, hvaða leið eigum við þá að fara?