fjárlög 2027.
Frú forseti. Þegar ég er að tala um fyrirsjáanleika þá er ég einmitt að tala um að hækkanirnar komi ekki bara tíu dögum fyrir áramót. Það sé fyrirsjáanleiki og ef þú ert að hækka þá verði það boðað með a.m.k. árs fyrirvara, þá í fjárlögum 2028, myndum við gera núna, þá kæmi hækkunin. Það er fyrirsjáanleiki. Það vantar og það gerðist hér í fyrra, sem var mikið slys, með vörugjöldin á bílana. Það var bara ákveðið með nokkurra daga fyrirvara. Við getum ekki verið með fyrirsjáanleika sem byggist á þessu. Svo var þetta rosalega verðbólguskot tengt því í fyrra, 0,6%, inn í verðbólguna og er hluti af því að það hefur gengið alveg hræðilega illa að ná niður verðbólgu. Það er mikilvægt.
Baðlónin — þá kem ég bara að því sama, fyrirsjáanleika. Er þá ekki réttast að boða þetta eftir tvö, þrjú ár með einhverjum fyrirsjáanleika þannig að aðilar sem eru að pæla í að fara í fjárfestingar núna, sem eru þó nokkrir í landinu, viti að hverju þeir ganga? Þetta er það sem við erum alltaf að kalla eftir og sá sem hér stendur hefur kallað eftir í bráðum tíu ár hér í þingsal; það er fyrirsjáanleiki fyrir atvinnulífið. Fyrirsjáanleiki ætti náttúrlega að vera líka bara fyrir alla.
Kílómetragjaldið og hvernig var staðið að því — það var ekki klárað 2024. Það var ekki vilji fyrir því haustið 2024 að klára það með þeim hætti sem það var sett fram þá. Það eru miklar efasemdir um það enn þá og hvernig hefur verið staðið að málum. Þannig að þó að fyrri ríkisstjórn hafi verið með þær hugmyndir og lagt þær fyrir þá var ekki endilega meiri hluti fyrir því í þinginu að fara nákvæmlega þannig í málið. Verðlagsforsendurnar síðan í þessu máli hérna, ég ætla aðeins að koma inn á það, eru náttúrlega með hreinum ólíkindum. Það er verið að miða við 5,2% í grunninn í þessu fjárlagafrumvarpi, verðlagsforsendur og hækkun krónutölugjalda um 5,2%. En verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5%. Hvað eigum við að gera með sveitarfélögin? Hvernig eiga allir að bregðast við þegar ríkið leggur línuna svona? Stóra málið hjá þessari ríkisstjórn eru vextir og vaxtastig, að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þetta er, held ég, eitt það alvarlegasta í þessu öllu saman.