fjárlög 2027.
Frú forseti. Það var nú þannig haustið 2024, það er kannski ágætt að halda því til haga í umræðunni, að kolefnisgjöldin voru hækkuð mun meira haustið 2024 til að ná upp í þau markmið sem voru þá. Þá ættum við alveg eins að skoða það núna hér, ef kílómetragjöldin eru málið, að lækka kolefnisgjöldin. Þau voru hækkuð um 4 milljarða á sínum tíma þegar það gafst ekki færi á eða það var ekki vilji til að klára kílómetragjaldið í fjárlögunum sem við samþykktum í nóvember 2024 fyrir árið 2025, bara til að halda söguskýringunni algerlega til haga.
Hver var hinn punkturinn sem þú vildir helst fara í? (Gripið fram í.) Já, vörugjöldin. Þá vil ég bara benda á Seðlabankann, þegar þeir tilkynntu stýrivaxtahækkunina sem kom síðast, eina af þremur sem hafa komið í röð upp á 0,25%. Þar var nú tekið einmitt fram að opinber gjöld hefðu veruleg áhrif á verðbólguþrýstinginn sem væri uppi í þessu landi, það kom frá Seðlabankanum. Það hefur ekkert farið á milli mála hvernig Seðlabankinn hefur talað um þessi mál og verðbólguþrýstinginn á undanförnum misserum.
Það er bara mikilvægt að það sé fyrirsjáanleiki. Ég held að við munum það alveg að um síðustu áramót þá kom fram að verðbólguþrýstingurinn í byrjun árs hefði komið að stórum hluta út frá vörugjöldunum. Það var reiknað með því í síðustu fjárlögum að þrýstingurinn af verðbólgu yrði 0,1% upp, með vörugjöldunum, en samkvæmt gögnum sem komu síðar voru það 0,6%. Það var miklu meiri hækkun heldur en var reiknað með þegar við ræddum þetta fyrir ári síðan. Það er bara mikilvægt að svona fyrirsjáanleiki sé til staðar í öllu sem við gerum.