158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:23]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða fjárlög ársins 2027, fjárlög sem eru hallalaus en það hefur ekki gerst í áratug. Hallalaus fjárlög eru akkerið og festan sem við verðum að viðhafa við glímuna við vexti og verðbólgu. Sjálfbær ríkisfjármál auka trúverðugleika efnahagsstjórnarinnar, draga úr þörf ríkisins fyrir frekari lántökur og geta stuðlað að lægri verðbólguvæntingum og lægra vaxtastigi. Við getum ekki haldið áfram að reka ríkissjóð á yfirdrætti. Við verðum að vera með Seðlabankanum í liði og sýna aga og ábyrgð í ríkisfjármálum. Það er það mikilvægasta sem við getum gert fyrir heimili og fyrirtæki landsins. Ekkert okkar er ánægt með stýrivexti í 8% og verðbólgu upp á 5,6%. Saman verðum við að takast á við þetta. Það er reyndar margt sem bendir til þess að verðbólga gæti farið að hjaðna. Hægt hefur á launaskriði, raunverð á íbúðum hefur verið að lækka, það hefur dregið úr innflutningi fólks til landsins og vinnumarkaðurinn er að kólna. Ábyrgð í ríkisrekstri ætti að hjálpa til við að slá á verðbólguvæntingar, þannig að það eru merki um að verðbólgan gæti farið að lækka.

Uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 er 866 milljarðar. Ég ætla að fá að endurtaka: 866 milljarðar. Það er yfirdrátturinn sem við þurfum að borga. Við verðum að snúa af þessari leið. Kostnaðurinn af þessum uppsafnaða halla er svakalegur. Vaxtagjöld ríkisins á næsta ári eru áætluð 168 milljarðar. Til að setja þessar háu tölur í samhengi svo fólk tengi við þær, alla vega er það þannig fyrir mig að þessar tölur eru svo háar að ég á erfitt með að setja þær í samhengi, þá væri hægt að byggja tíu þjóðarhallir bara fyrir vaxtagjöldin. Fyrir sömu fjárhæð væri hægt að fjármagna stórar samgönguframkvæmdir á borð við Sundabraut og Fljótagöng, byggja hjúkrunarheimili og eiga pening eftir. Jarðgangaáætlun stjórnvalda er metin á 161 milljarð. Vaxtagjaldaupphæðin er af þeirri stærðargráðu að hún er á við nýjan Landspítala. Það mun því mikið ávinnast með því að ná tökum á ríkisfjármálum og skila ríkissjóði réttum megin við núllið. Vaxtakostnaður ríkisins hefur aukist gríðarlega á fáum árum, nánar tiltekið um 109 milljarða frá árinu 2021 og fram á þetta ár. Þeir fjármunir sem fara í vexti geta ekki á sama tíma farið í heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, samgöngur eða uppbyggingu innviða.

Fjárlagafrumvarpið 2027 markar því mikilvæg tímamót. Við erum að fara úr halla yfir í plús. Það er gert ráð fyrir 5 milljarða kr. afgangi og þar með er ríkissjóður farinn að skila afgangi. 5 milljarðar leysa auðvitað ekki skuldavanda ríkisins á einu ári. Mikilvægið er fyrst og fremst í stefnubreytingunni; við sýnum ábyrgð og tökum á vandanum. Þetta verður ekki auðvelt en það sagði enginn að þetta yrði auðvelt. Þetta er hins vegar mikilvægt og eins og allt sem er erfitt verður það auðveldara þegar frá líður. Heimilin og fyrirtækin munu svo sannarlega uppskera þegar vextir og verðbólga fara að lækka. Það er verið að fara skynsamlega leið sem er blanda af hagræðingu og nýrri tekjuöflun. Aðhald og hagræðing eiga að skila 44 milljörðum kr. á næsta ári en nýjar tekjuráðstafanir um 22,6 milljörðum. Fyrir hverja krónu sem er aflað með nýjum gjöldum fást 2 kr. með aðhaldi og hagræðingu. Þetta skiptir máli. Einfaldasta leiðin hefði verið að sækja beint í vasa skattgreiðenda en sú leið er ekki farin. Hagræðingin felur í sér endurskipulagningu verkefna, að nýta tæknina betur, samræma innkaup, einfalda stjórnsýslu, spyrja stöðugt hvernig við getum veitt sömu þjónustu fyrir minna fé og reyna að sameina stofnanir.

Nýju tekjuráðstafanirnar fela í sér að leita í geira sem geta borið þyngri byrðar. Þar fer mest fyrir bankaskattinum en eins og sjá má á afkomutölum bankanna er nóg til þar. Hagnaður bankanna í fyrra var 94 milljarðar og ég held að það megi fullyrða að afkoman í ár verði ekki lakari en í fyrra. Þau uppgjör hingað til benda sannarlega ekki til annars. Bankarnir geta því vel lagst á árarnar með öllum hinum við að ná stöðugleika í ríkisrekstrinum án þess að velta því yfir í verðlagið. Svo er gert ráð fyrir því að hækka virðisaukaskatt á baðlón en þau bera 11% virðisaukaskatt í dag á meðan flest annað á Íslandi ber 24% virðisaukaskatt. Rekstur baðlóna gengur vel og þeim hefur fjölgað hringinn í kringum landið. Blönduð leið af hagræðingu og nýrri tekjuöflun er því skynsamleg leið til að ná jafnvægi á ríkisrekstrinum.

Samhliða þessu þarf auðvitað að skapa gott vaxtarumhverfi fyrir verðmætasköpun og þar mun atvinnustefna stjórnvalda spila lykilhlutverk. Einfaldari og skilvirkari stjórnsýsla mun einnig styðja við verðmætasköpun og aukin orkuöflun við samþykkt á nýjum rammaáætlunum og minna reglugerðarfargan hjálpar til. Við erum með gott fjárfestingarstig og boðað hefur verið til fjárfestingarþings á vegum nýja innviðafélagsins, Göng og brú, í næstu viku. Við höfum verið að fá góðar fréttir af Grundartanga en þar er Norðurál aftur farið að framleiða á fullum afköstum eftir bilunina í fyrrahaust og það munar um minna. Það er góður bati í stærstu útflutningsgreinunum okkar, það er hátt fiskverð og álverið hjálpar líka til.

Virðulegur forseti. Markmiðið með hallalausum fjárlögum er ekki markmiðið í sjálfu sér. Markmiðið er að stöðva skuldasöfnunina, ná niður verðbólgu og vöxtum, bæta vaxtakjör ríkisins, skapa svigrúm til uppbyggingar og tryggja að ríkissjóður hafi burði til að bregðast við þegar næsta áfall dynur yfir. Við vitum ekki hvort næsta stóra áfall verði náttúruhamfarir, heimsfaraldur eða enn eitt stríðið í Mið-Austurlöndum, tollastríð, alþjóðleg fjármálakreppa eða eitthvað sem við sjáum ekki fyrir. En við vitum að með eins lítið og opið hagkerfi og Ísland er þá þurfum við að vera viðbúin. Þess vegna þurfum við sterk ríkisfjármál, stöðugleika og ábyrgð í ríkisrekstri en það er forsenda þess að við getum varið lífskjör fólks þegar á reynir og fjárfest þegar tækifæri skapast. Ég hlakka til samstarfsins í fjárlaganefnd við vinnu þessa frumvarps.