158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:30]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir hennar framsögu hér. Ég verð að segja að mér finnst það svolítið sérstök skilaboð þegar er verið að tala um að nú sé verðbólga að hjaðna, sérstaklega í ljósi þess og því er fagnað að hér sé eiginlega allt að verða botnfrosið, að verðmæti fasteigna sé að rýrna og að atvinnulífið sé að dragast saman og því er fagnað því að þá eigi verðbólgan að fara að hjaðna þegar allt er botnfrosið og eignir fólks rýrna í verði.

En þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Af hverju í ósköpunum eru þá allar krónutöluhækkanir 5,2%? Af hverju var ekki miðað við 2,5%, verðbólgumarkmiðið? Greiningaraðilar gerðu ráð fyrir 4,6–4,8% en ríkisstjórnin, sem segir að verðbólgan sé að hjaðna, ætlar að koma hér með krónutöluhækkanir upp á 5,2%. Finnst hv. þingmanni það vera til þess að draga úr verðbólgunni að koma með 5,2% gjaldahækkanir?