fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, sem var nú bara mjög gott. Ég held kannski að það endurspegli svolítið hvernig við horfum á hlutina. Ég var auðvitað ekki að fagna því að raunvirði hefði lækkað og fagna því að hagkerfið hefði kælst en það þurfti kannski að kæla það örlítið niður. Það má náttúrlega ekki kæla það of mikið niður af því að hagvöxtur undanfarinna ára hefur verið keyrður á fólksfjölgun einni saman með tilheyrandi álagi á innviðina, á vegina okkar, á heilbrigðiskerfið, á húsnæðismarkaðinn, og það er ekki efnahagsstefna sem gengur til lengdar. Við þurfum að ná jafnvægi í þetta. Ég veit ekki hvernig hann fór að því að skilja það þannig að ég hefði verið að fagna þessu sérstaklega. En þetta eru aðstæðurnar sem verða til þess að verðbólga lækkar. Ég var eingöngu að benda á það. Hún er ekki farin að lækka en það eru öll merki um að hún lækki þegar þessar aðstæður eru uppi. Það má sjá í þeim minnisblöðum sem liggja fyrir og er farið vel yfir í fjárlögunum sem við erum hér að ræða þannig að það má bara benda á það.