fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir svarið þó að hún hafi í rauninni ekki svarað spurningunni. En það er samt ágætt að benda á að þegar er verið að tala um að hér hafi verið innflutningur á fólki til þess að vinna störf þá er það t.d. fyrir ferðaþjónustuna sem hefur skapað 600 milljarða í útflutningstekjur og þar hafa yfir 200 milljarðar skilað sér beint í skatta og opinber gjöld.
En mig langar að spyrja hv. þingmann, sem er þingmaður Norðvesturkjördæmis og býr á Vestfjörðum. Nú er verið að hækka kílómetragjaldið um tæplega 16%. Þetta mun hafa áhrif á bílaleigurnar sérstaklega og fyrir fjórðung eins og Vestfirði, alveg eins og það kjördæmi sem ég kem úr, Norðausturkjördæmi — þetta mun hafa áhrif á ferðaþjónustuna hjá þeim sem búa lengst í burtu. Þetta mun líka hafa áhrif á fyrirtækin úti á landi sem horfa upp á hækkaðan flutningskostnað og þetta mun líka hækka aðföng inn til okkar kjördæma. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig í ósköpunum getur hún stutt að hækka kílómetragjaldið um 16% þegar afleiðingarnar liggja algerlega ljósar fyrir, m.a. á íbúa hennar kjördæmis?