158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:34]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka þingmanninum aftur fyrir andsvarið. 16%. Það má líka segja að við erum að hækka kílómetragjaldið um 1 kr. úr 6,95 í 8,05, þ.e. 1,10 kr. Há prósentutala virðist oft vera mjög mikið en kannski er þetta nú bara 1 kr. eins og í þessu tilfelli. Til að byggja undir grunninnviði þessa lands, sem er samgöngukerfið, þá verðum við að sækja tekjur. Kílómetragjaldið er ein leið til þess. Sú ríkisstjórn sem hv. þingmaður studdi, geri ég ráð fyrir, sem var sú síðasta, vildi líka sækja tekjur af samgöngum en það var óútfært af því að þeir fóru ekki í kílómetragjaldið. Mér finnst kílómetragjaldið vera sanngjarnt af því að það er þannig að þeir borga sem nota og allar greiningar sem við höfum gert sýna það að landsbyggðin er að koma betur út úr þessu en höfuðborgarsvæðið af því að landsbyggðin keyrir minna. En mér finnst líka bara sanngjarnt að ferðamenn greiði hér fyrir að nota vegina okkar eins og allir aðrir, það er sanngjarnt og bara sanngirnismál að mínu mati þannig að ég hef ekki áhyggjur af því.