fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Það er nú kannski dálítið ófyrirleitið af ráðherra í ríkisstjórn sem skapaði hér halla upp á 866 milljarða að halda þessu fram. Það sem við erum nefnilega (Gripið fram í.) að eiga við er fortíðarvandi fyrri ríkisstjórnar og gegndarlausan halla sem hér hefur átt sér stað sem við erum að reyna að stoppa núna og stöðva. Komdu með okkur í verkefnið, hv. þingmaður. (GÞÞ: Svaraðu spurningunni. )Ég er að svara henni ef þú leyfir mér að komast að. Bíddu nú við, hvar var ég? Þú settir mig alveg út af laginu. Af hverju erum við að safna skuldum? Af því að við erum að eiga við fortíðina. Það er auðvitað sjálfsagt að fara eftir fjármálaráði og ég hlusta mikið á það og ég tel að við höfum farið að stóru leyti eftir ábendingum fjármálaráðs. Mér finnst það vera mikilvægt og við eigum að sjálfsögðu að hlusta á það og reyna að fara eftir því sem best getur orðið. En það er auðvitað áhugavert að heyra hv. þingmann tala núna um lánsfjárjöfnuðinn og ég veit að við eigum eftir að ræða það betur í fjárlaganefnd. Ég nenni ekki að vera alltaf að horfa í fortíðina en vandinn sem við erum í í dag er vegna ákvarðana sem voru teknar í fortíðinni og við erum að eiga við það núna.