fjárlög 2027.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og andsvarið. Þetta var nú svo sem ekki nein óvinsælda- eða vinsældakönnun, hvar ætti að bera niður. Það var bara verið að horfa á þær greinar sem hafa borð fyrir báru og svo var líka horft til þeirra ráðlegginga sem við höfum fengið frá OECD varðandi skattstyrkina, þá er ég auðvitað að horfa á baðlónin. Hún spyr: Hvað er eðlilegt að bankarnir hafi í hagnað? Það má líka segja að bankarnir settu sér sjálfir arðsemiskröfur og þeir fóru langt umfram það. Það er kannski eitthvert viðmið, hvaða kröfur þeir settu sér og það var þarna eitthvað umfram og það má kannski setja það í samhengi við það sem fjárlagafrumvarpið og bandormurinn ganga út á. Það eru þær kröfur sem þeir setja. En ég myndi nú segja að 94 milljarðar af þessum þremur bönkum séu talsvert mikið og það sé nóg til. Það er bara mín skoðun og hv. þingmaður kann að hafa aðra skoðun á því. (Forseti hringir.) Mér finnst það vera eðlilegt að bankarnir skili meira til samfélagsins af því að íslensku bankarnir hafa tekjur sínar fyrst og fremst af íslenskum heimilum og íslenskum fyrirtækjum.