158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Aftur er talað um 94 milljarða algjörlega samhengislaust. Ég ætla ekki að eyða seinna andsvari í að ræða það aftur því ég á ekki von á betra svari þó ég spyrji aftur þannig að ég ætla að snúa mér að baðlónunum sem hv. þingmaður talaði hér um að væru að fá skattstyrki. Þá spyr ég: Þekkja hv. þingmenn meiri hlutans hvernig þessu var háttað? Hér árið 2014 var enginn virðisaukaskattur á baðlón. Það var ákveðið að fara með hann upp í 11% til samræmis við annan virðisaukaskatt þegar kom að ferðaþjónustu. Af hverju var ekki farið í 24%? Jú, fyrst og fremst út af samkeppnissjónarmiði, samkeppni við baðlón erlendis sem eru mjög oft með minni virðisaukaskatt en efra þrep skattsins. Þetta er ekki séríslenskt og þess vegna fór skatturinn í þetta, þetta eru samkeppnissjónarmið. Þess vegna vil ég líka spyrja hv. þingmann, (Forseti hringir.) því að árið 2014 þegar skatturinn hækkaði þá tók það gildi 1. janúar 2016 til að gefa greininni svigrúm: Er ekki eðlilegt að gefa ferðaþjónustunni svigrúm einhvern tíma áður en þetta tekur gildi og hefur hv. þingmaður engar áhyggjur af samkeppnisstöðu greinarinnar?