158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:50]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Hún spyr hér um fyrirsjáanleikann. Þetta var auðvitað kynnt í fjármálaáætlun þannig að það var þó einhver tími fyrir greinina að hugsa þetta. Hún spyr líka hvernig þetta sé á Norðurlöndunum og það kemur hér fyrir í bandorminum á bls. 18, sem ég og hv. þingmaður eigum eftir að ræða vel í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem bandormurinn verður til umræðu. Þar kemur fram að skattaleg meðferð baðlóna er ekki eins, með leyfi forseta:

„Í Danmörku fellur skattskyld sambærileg þjónusta undir almennt skatthlutfall virðisaukaskatts. Í Svíþjóð og Finnlandi ber þjónusta sem einkum felur í sér afþreyingu, upplifun eða slökun almennt virðisaukaskatt samkvæmt almennu skatthlutfalli. Í Noregi ber skattskyld bað- og heilsulindaþjónusta virðisaukaskatt samkvæmt almennu skatthlutfalli …“

Þetta munum við kannski fara dálítið yfir í nefndinni. Hér erum við auðvitað bara að horfa á afmarkaða grein ferðaþjónustunnar. Við erum bara að horfa á baðlónin en þau hafa líka verið að skila góðum afgangi. Svo mætti líka horfa til, eins og ég hef nefnt hér í ræðum áðan, bara aðgangs að bíói: (Forseti hringir.) Af hverju á að vera minni virðisaukaskattur á bíómiða heldur en á miða í baðlón? Mér finnst það spurning sem hv. þingmenn ættu að spyrja sig.