fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég sjálfur var ekki í andsvörum áðan við hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur, en langar að benda þingmanninum á að skoða ársreikninga baðlóna. Þau eru mjög, mjög misjöfn og reksturinn í járnum hvað mörg þeirra varðar og þessi skattahækkun eða hækkun á virðisauka mun alveg örugglega setja mörg þeirra í mikinn vanda og breyta áætlunum þeirra um frekari vöxt á þeim svæðum þar sem þau eru. Þetta á sérstaklega við um baðlón úti á landi.
En að minni ræðu hér. Hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, sagði hér í sal þessum 11. júní síðastliðinn, með leyfi forseta: „Við munum skila hallalausum fjárlögum 2027 sama hvað það kostar. “ Sama hvað það kostar. Hver segir svona? Sama hvað það kostar. Mér var hugsað til þessara orða áðan á hlaupabrettinu á meðan ég hlustaði á ræður þingmanna í eyrunum. Síðasta vetur ákvað ég að koma mér í betra form, var orðinn tæp 118 kíló, sem er ekki ásættanlegt, og ég setti mér skýr markmið um að komast niður fyrir 100 kíló, þriggja stafa töluna, fyrir sumarið. Það tók á, þurfti aga, þrautseigju og aðhald, en mér tókst það, sjálfum mér til mestrar gleði, fyrir 1. júní. Að þessu leyti get ég samsamað mig við markmið ríkisstjórnarinnar. Hallalaus fjárlög, niður fyrir 100 kíló 1. júní. Ég vildi komast undir 100 kíló. Ríkisstjórnin vildi komast á núllið. En það er einn stór munur. Það var ekki fyrir mig: Sama hvað það kostar. Ef ég hefði staðið í 109 kílóum seint í maí, þá hefði mér ekki dottið í hug, sama hvað það kostaði, að skera af mér höndina til að komast undir 100 kílóa markið. Ég hefði getað stigið á vigtina eftir þann atburð og sagt: „Markmiðinu náð.“ Talan á vigtinni hefði verið rétt og ég hefði náð skammtímamarkmiði með að skaða mig til framtíðar. Og það er nákvæmlega spurningin sem við eigum að spyrja um þessi fjárlög. Talan, að komast upp úr mínusnum — skiptir það engu máli hvernig hún næst?
Ríkisstjórnin ætlar að sækja 34,1 milljarð kr. með skattbreytingum og öðrum tekjuráðstöfunum og reikningurinn fer að hluta til til fyrirtækja og heimila. Ef við náum 5 milljarða afgangi með ráðstöfununum, þá munum við veikja samkeppnishæfni, draga úr fjárfestingum, minnka hvata til verðmætasköpunar og þá getur langtímareikningurinn orðið miklu stærri en skammtímaávinningurinn. Sama hvað það kostar. Fjárlagafrumvarpið viðurkennir þetta raunverulega sjálft og það segir orðrétt, með leyfi frú forseti: „Þróun framleiðni, sem einnig er undirliggjandi drifkraftur kaupmáttarþróunar, hefur heldur ekki verið hagstæð undanfarið …“ Þess vegna megum við ekki höggva í framtíðarframleiðslugetu þjóðarinnar til þess eins að geta sýnt fram á 5 milljarða kr. afgang, sama hvað það kostar. Það væri eins og að höggva af sér útlim til að ná réttri tölu á vigtinni. Markmiðinu væri náð, en við værum verr sett en í upphafi. Hallalaus fjárlög eru ágætismarkmið, en ekki sama hvað það kostar.
Virðulegi forseti. Mig langar líka að setja hallalaus fjárlög aðeins í annað samhengi sem fær enga athygli, eiginlega enga. Ríkisstjórnin ætlar að skila 5 milljarða afgangi og gerir mikið úr því. En í fjárlagafrumvarpinu sjálfu er talað um framleiðni og þar er beinlínis sagt, með leyfi frú forseta, eins og ég nefndi áðan: „Þróun framleiðni, sem einnig er undirliggjandi drifkraftur kaupmáttarþróunar, hefur heldur ekki verið hagstæð undanfarið …“ Og frumvarpið gengur lengra. Það setur upp sérstaka bjartsýna sviðsmynd þar sem meiri framleiðni leiðir til meiri hagvaxtar, hagvöxtur verður um 1,5 prósentustigum meiri og afkoma ríkissjóðs 20 milljörðum kr. betri.
En hvað er framleiðni, fyrir þá sem eru að horfa hér og heyra þetta orð? Það er ekki öllum gefið að vera með þessi hagfræðihugtök á hreinu. Hún snýst einfaldlega um það að við náum að skapa meiri verðmæti fyrir vinnuna okkar og þegar það tekst, þá verða fyrirtækin sterkari, launin geta hækkað og lífskjör batnað og samfélagið hefur úr meiru að spila til að standa undir skólum, heilbrigðiskerfi og velferð. Þess vegna, frú forseti, skil ég ekki stærstu viðvörun sem við höfum fengið hvað framtíðarframleiðni varðar. Þau viðvörunarljós og þau rauðu flögg eru ekkert hér til umræðu. OECD sagði um Ísland í fyrra að meira en 40 stiga lækkun á meðalnámsárangri í PISA frá 2006 til 2022 gæti dregið úr heildarframleiðni landsins um að minnsta kosti 5%, meira en 5%. Til að setja stærðargráðuna í samhengi eru 5% af landsframleiðslu næsta árs hátt í 280 milljarðar. Auðvitað er OECD ekki að segja að 280 milljarða reikningur komi inn um lúguna á næsta ári en þetta snýst um framleiðslugetu þjóðarinnar til lengri tíma. Þetta er meira en 50 sinnum stærri tala en 5 milljarða afgangurinn sem er verið að ræða. Síðan OECD skrifaði þetta um PISA-niðurstöðurnar, þá hafa þær versnað enn frekar. Munum það að PISA er að mæla STEM-greinar þar sem við stöndum sérstaklega höllum fæti. Og þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra, sem er líklegast að hlusta: Ef framleiðni er svona mikilvæg og hún fær sérstaka sviðsmynd í fjárlagafrumvarpinu, hvers vegna er þá hnignun menntakerfisins ekki meðhöndluð sem alvarleg efnahagsleg áhætta? Hvers vegna er algjörlega skautað fram hjá þessum niðurstöðum og ekkert um þær rætt hér í pontu? Menntun er ekki bara útgjaldaliður. Hún er ein af undirstöðum framtíðarframleiðni, hagvaxtar og þar með framtíðartekna ríkissjóðs.
Virðulegi forseti. Ég tel það rétt markmið að reka ríkissjóð án halla en ekki sama hvað það kostar. Hverjir greiða reikninginn? Heimilin og fyrirtækin, rúma 30 milljarða. Í þessari tölu er fjöregg landsbyggðarinnar, ferðaþjónustan, en þangað á að sækja 10–11 milljarða. Hér er rétt að staldra við. Ferðaþjónustan er ekki einhver ótæmandi skattstofn. Hún er atvinnugrein í alþjóðlegri samkeppni og þá sérstaklega auðvitað við önnur norræn ríki eins og Noreg. Hún selur vöru sem ferðamaðurinn getur einfaldlega ákveðið að kaupa annars staðar. Ferðaþjónustan er ekki einhver hliðargrein í íslensku efnahagslífi. Hún er ein af meginstoðum þess. Á síðasta ári skapaði greinin um 630 milljarða í gjaldeyristekjur og þriðjung af öllum útflutningi vöru og þjónustu á Íslandi. Um 31.000 störf tengjast greininni og skattspor hennar er um 200 milljarðar. Ferðaþjónustan hefur skapað störf og fjárfestingu þar sem fjölbreytt atvinnulíf hefur oft skort. Hér ætlar kyrkislangan, ríkisstjórnin, að kreista súrefni úr þessum samfélögum. Ferðaþjónustan heldur úti veitingastöðum, gistingu, afþreyingu og annarri þjónustu sem nýtist ekki bara ferðamönnum heldur samfélögunum sjálfum.
Mögulega kemur einhver hér upp og segir: Við erum ekki að tala um ferðaþjónustuna. Jú, menn eru að gera það. Við erum bara að tala um baðlón. Við skulum átta okkur á því að baðlón, eins og ég nefndi hér í upphafi, eru í ólíkum rekstri. Okkur Íslendingum hefur tekist að skapa ákveðið menningarfyrirbæri í kringum baðlónin eins og sundlaugarnar okkar og þetta eru þvílíkir ferðamannaseglar út um allt land, bæði fyrir erlenda ferðamenn og íslenska. Ef við ætlum að fara að kreista súrefnið úr þessum stöðum þá erum við á vondum stað.
Við erum mikið í umbúðastjórnmálum, frasapólitík. Verðmætasköpunarhaust, sleggja, verkstjórn, aðhald á tekjuhlið. Kannast einhver við þessa frasa? Ríkissjóður skapar ekki verðmætin sem standa undir samfélaginu. Fólkið og fyrirtækin í landinu gera það.