fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir svarið og það er alveg augljóst að við horfum á þetta með ólíkum augum. Það er líka allt í lagi og það er bara eins og hlutirnir eru. Að skattleggja í drep er einhver frasi sem maður hefur heyrt, það sé ekki hægt að skattleggja til velsældar, sagði formaður Sjálfstæðisflokksins hér. Ég deili því nú ekki með henni af því að það eru einmitt þessi norrænu velferðarríki sem hafa einmitt verið með hærri skatta en á Íslandi sem hafa gengið rosalega vel og þar sem ójöfnuður er minnstur. Það eru samfélög sem ég horfi til þannig að við kannski horfum á þetta með ólíkum augum. Ég lít ekki svo á að með því að fara í nýjar tekjuráðstafanir, setja á bankaskatt þar sem er nóg til og afnema skattafslátt á baðlón, séum við að skattleggja Ísland í drep. Það er bara svo fjarri lagi. Við erum að sækja tekjur þangað sem þær eru svo að við þurfum ekki að leita í vasa almennings. Auðvitað hefði verið einfaldast að hækka bara tekjuskattinn. En við erum ekki að fara þá leið. Margir hafa talað hér fyrir því að hækka fjármagnstekjuskatt. Það hefði líka verið mjög auðvelt en við erum ekki að fara þá leið. Við erum að fara þessa leið þar sem er svigrúm að mínu mati. Ég tek algjörlega undir með hv. þingmanni, við erum að hagræða í ríkisrekstri. Tvo þriðju erum við að taka með hagræðingu í ríkisrekstri, einn þriðji kemur inn með nýjum tekjuráðstöfunum. Eins og ég segi, við horfum kannski á verkefnið ólíkum augum en ég held að við ættum hins vegar að sammælast um það að það að ná hallalausum fjárlögum skapar trú á efnahagsstefnuna og þannig sköpum við skilyrði fyrir lækkun vaxta og verðbólgu.