158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:09]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég ætla hv. þingmanni ekki að hafa verið að leggja mér orð í munn, að ég vilji ekki norræn velferðarsamfélög sem ég er nú almennt hlynntur. Við getum skapað verðmæti og stækkað kökuna. Það er sú leið sem ég kýs að fara, að veita fólki frelsi til athafna, hefta það ekki, draga ekki úr hvötum til að búa til eitthvað nýtt, nýsköpun. Fyrir það stendur Sjálfstæðisflokkurinn. Skattlagningar með litlum fyrirvara og skattlagningar almennt kunna að hljóma ágætlega fyrir fólk sem lendir ekki í þeim. En þeir sem eru búnir að búa til áætlanir, eru að hugsa um að gera eitthvað og fá síðan ófyrirséðar skattahækkanir í hausinn, þeir kippa að sér höndunum og það dregur máttinn úr samfélaginu. Ég held að allir geti horft inn á við og hugsað að ef þeim dytti eitthvað í hug og langaði að gera eitthvað, hvort sem það er á heimilinu eða fara út í rekstur eða gera eitthvað annað — að vita til þess að ef það er mögulegt að þeim gangi vel þá sé ríkið komið með lúkuna ofan í vasann hjá þeim um leið. Það er ekki gott samfélag. Við eigum að leyfa fólki að breiða út vængina og blómstra, skapa verðmæti og stækka kökuna og stækka þannig heildarskattspor landsins. Þetta er ákveðin hugmyndafræði sem allt of fáir hér í salnum virðast átta sig á og tileinka sér. Ferðaþjónustan kom hér með köku fyrir okkur. Við getum haft hana stærri. Við getum látið ferðaþjónustuna breiðast víðar út. (Forseti hringir.) Ætli það verði byggð fleiri baðlón núna einhvers staðar upp á hálendi eða annars staðar (Forseti hringir.) þar sem þau gætu mögulega verið þegar búið er að hækka þessa skatta? Mögulega ekki. Og fyrir vikið fá kannski ekki 40-50 manns vinnu í þeim baðlónum sem ekki verða til. Þetta er mín sýn.