fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hressilega ræðu. Ég tek undir með honum að auðvitað er ekki hægt að ætla sér að ná þessum árangri burt séð frá því hvað hann kostar. En ég spyr á móti: Ef við ætlum ekki að gera þetta núna, þegar ytri aðstæður eru að mörgu leyti hagfelldar, hvenær ætlum við þá að ná niður þessum skuldahala? Ég fór yfir það í ræðu minni að það skiptir miklu máli. En auðvitað eru fleiri þættir í ræðunni sem ég tek undir með hv. þingmanni, eins og gildi menntunar. Þetta skiptir verulega miklu máli fyrir hagsæld þjóðarinnar til framtíðar, þ.e. þegar nemendur koma út í lífið, úr grunnskólum og framhaldsskólum, að þeir séu þokkalega undirbúnir undir framhaldsmenntun. Þetta skiptir verulega miklu máli fyrir framtíðina og jafnvel meira máli heldur en hvort verðbólgan sé 3 eða 4%. Ég tek undir þau sjónarmið.
En af því að menn eru að ræða köku þá ætla ég að fara yfir í önnur matvæli, í fiskinn. Nú er staðreyndin sú, ef menn fara yfir hve mikið er veitt, t.d. af útgefnum veiðiheimildum íufsa, að þá er það bara rétt rúmlega helmingur af útgefnum veiðiheimildum núna umliðin ár. Hann er bara skilinn eftir alveg óveiddur. Og það er þá alveg tilvalið, sérstaklega fyrir hv. þingmenn sem vilja vera talsmenn frelsisins, að leyfa öðrum að veiða ufsann sem hafa ekki viðkomandi veiðiheimildir, fyrst þeir sem fá þeim úthlutað hirða ekki um að veiða hann. Það væri áhugavert að fá hér kökumeistara Sjálfstæðisflokksins til að fara yfir það hvort það sé ekki eðlilegt að gefa öðrum frelsi til að veiða fisk, (Gripið fram í.) þeim sem hafa ekki veiðiheimildir, þegar þeir sem fá úthlutað veiðiheimildum ár eftir ár hirða ekki um það.