fjárlög 2027.
Frú forseti. Þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir ágætisandsvar. Hv. þingmaður talar um að minnka skuldir ríkisins, sem er hárrétt. Það er vont að reka heimili, fyrirtæki eða ríkið í yfirdrætti. Það þarf að borga háa vexti af því og það eru peningar sem menn geta notað í allt annað. Þá þurfum við að skera niður í ríkisrekstri. Ríkisbáknið er að þenjast út og það er þá leiðin. Ég fagna því að hv. þingmaður minnist hér á menntamálin, enda er formaður flokks hv. þingmanns mennta- og barnamálaráðherra. Það væri svona ferskur andblær inn í þingið ef fleiri myndu tala á þessum nótum, eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson, um menntamálin. Ég fagna því.
Svo langar mig að benda hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni á að Flokkur fólksins er núna í fyrsta sinn í ríkisstjórn og því í kjörstöðu til að breyta því sem flokkurinn er að ræða varðandi fiskveiðistjórnarkerfið. Flokkur fólksins hlýtur þá að geta fengið bæði Viðreisn og Samfylkinguna með sér í þessar breytingar. Meiri hluti þingsins er ykkar. Meiri hluti þingsins er ríkisstjórnarinnar. Menn hafa nú gert minna en það hér í þinginu, að keyra ýmis mál í gegn. Ég hvet því hv. þingmann til að horfa inn á við og ræða við sína menn í ríkisstjórninni.