fjárlög 2027.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er greinilegt að það er vilji hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að veita stuðning þessu góða máli, þ.e. að gefa öðrum frelsi til að nýta aflaheimildir sem ekki eru nýttar af þeim sem fá þeim úthlutað ár eftir ár. Mér finnst það jákvætt og gott að heyra að hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins taki bara þokkalega vel í það. Mér finnst það. Núverandi ástand er bara vitleysa; að einhver fái aflaheimildir og nýti þær ekki. Við eigum auðvitað sem þingmenn að skoða einmitt þessa þætti og ef einhver er ekki að nýta sameiginleg verðmæti gefa þá öðrum kost á að gera það. Einnig ættum við að skoða öll rök, frú forseti, sem geta leitt til þess að við förum betur með sameiginlegar auðlindir, vinnum meira úr þeim þannig að fiskurinn fari frekar unninn á erlendan markað. Við ættum að koma með reglur sem stuðla að því að menn séu ekki að fara út með hráefni sem er unnið erlendis en koma því þannig fyrir að virðisaukinn verði til hér innan lands.