158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:19]
Horfa

Árni Helgason (S):

Frú forseti. Við ræðum frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 hér. Það hefur margt fróðlegt komið fram í umræðunni nú þegar en það vakti óneitanlega athygli mína þegar maður fylgdist með mjög svo leikrænum tilþrifum á blaðamannafundi fjármálaráðherra og fleiri ráðherra ríkisstjórnarinnar þegar frumvarpið var kynnt á dögunum. Fyrsti punkturinn sem sló mig svolítið var, og þetta hefur komið fram í umræðunum hér í dag líka, hvaða sögu var verið að segja með frumvarpinu og því sem hefur verið bent á, að við séum að ná markmiði um hallaleysi. Þessu var fylgt eftir með því að teknar voru saman stórar tölur aftur í tímann um halla tiltekinna ára. En mér fannst alveg ósagt látið í hvaða samhengi, við hvaða aðstæður og í hvaða umhverfi í samfélaginu við vorum þegar þessi halli var. Ég held að það liggi alveg fyrir að á árunum 2019–2024 gekk yfir íslenskt samfélag mjög mikið af utanaðkomandi áföllum. Ég held að það sé enginn sem geti andmælt því. Þetta byrjaði með falli WOW air sem hafði töluverð áhrif til hins verra hér innan lands. Svo kom auðvitað Covid-faraldurinn sem var risastór viðburður hér, rétt eins og annars staðar í heiminum, og gríðarlega kostnaðarsamur fyrir ríkissjóð. Þegar við vorum einhvern veginn loksins að komast á lappirnar út úr þeim öldudal tóku við jarðeldar á Reykjanesi sem leiddu á endanum til þess að það þurfti að kaupa upp húsnæði í heilu sveitarfélagi.

Útgjöld ríkissjóðs vegna þessara útgjalda voru gríðarlega há og mæld í hundruðum milljarða, þannig að eðlilega varð halli þar á. Það hlýtur að vera hluti af einhvers konar ábyrgri umræðu í stjórnmálum og frásögn og kynningu mála að taka fram hvert var samhengið og hverjar voru orsakirnar. Það væri svo sem líka heiðarlegt, ef við erum farin aðeins að rifja þessa sögu upp, að halda því til haga að í hvert einasta skipti sem þáverandi ríkisstjórn kom og kynnti aðgerðir og fjárútlát í tengslum við t.d. heimsfaraldur þá kom stjórnarandstaðan á þeim tíma og sagði að ekki væri nóg að gert; það ætti að ganga lengra og það ætti að eyða meiru. Höldum þessu alveg til haga. Þáverandi stjórnarandstaða stóð ekki hér og lagði til að við ættum að vera mjög gagnrýnin á sóttvarnaraðgerðir eða fjárútlát úr ríkissjóði, þvert á móti talaði hún í allt aðra átt á þeim tíma. En gott og vel, þetta var nú svona aðeins varðandi söguupprifjunina.

Fjárlagafrumvarpið núna gerir ráð fyrir að ríkissjóður verði hallalaus á næsta ári og því ber út af fyrir sig að fagna. En það er ekki sama hvernig hallaleysinu er náð; er því náð með aðhaldi og tiltekt í rekstri ríkissjóðs eða er því náð með því að sækja meiri tekjur hingað og þangað? Með öðrum orðum: Hvernig næst hallaleysið? Hvernig er það fengið fram? Það blasir við í tilfelli þessarar ríkisstjórnar að hallaleysinu er ekki náð með tiltekt eða hagræðingu heldur er það sótt með auknum tekjum í formi gjaldtöku og skattheimtu. Það er í raun, virðulegur forseti, mjög sérstakt að sjá og það kom greinilega mörgum, og ekki bara mér, á óvart hvað ríkisstjórnin gengur langt í gjaldahækkunum.

Ef við förum aðeins aftur í tímann, bara í síðasta mánuð, miðjan ágúst eða 19. ágúst, ég held að ég fari rétt með, þá kynnti Seðlabankinn nýja stýrivaxtaákvörðun þar sem stýrivextir voru hækkaðir í þriðja sinn í röð. Seðlabankinn gaf við það tilefni ríkisstjórninni ákveðna leiðsögn þar sem bankinn sagði í sinni umsögn og sinni fréttatilkynningu að opinberar gjaldahækkanir væru leiðandi þáttur í verðbólguþróun hér innan lands. Þarna var bankinn að vísa til þeirra gjaldahækkana sem voru komnar fram. Þá er það sem var líka dálítið athyglisvert þegar hæstv. forsætisráðherra kom fram í fjölmiðlum strax í kjölfarið og viðurkenndi að það hefði sennilega mátt ganga skemur í gjaldahækkunum hjá hinu opinbera. Svo ég rifji það aftur upp þá var þetta bara seinni partinn í ágúst, kannski þrjár vikur síðan eða svo.

Hver eru svo næstu skref? Ríkisstjórnin, sem hefur haft það að meginmarkmiði sínu að ná tökum á efnahagsmálum, gerir akkúrat það sem Seðlabankinn varaði við og hækkar gjöld langt umfram verðbólgumarkmið. Nánar tiltekið ganga forsendur fjárlaga út á að hækkunin verði 5,2% þegar verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% — þetta er meira en tvöfalt hærra en það. Í stað þess að ríkisstjórnin slái tóninn með hóflegum gjaldahækkunum og gangi á undan með góðu fordæmi sem aðrir geta fylgt er farið í þveröfuga átt.

Það sem er svo vont við þetta er að ríkisstjórnin sendir með þessu ákveðin skilaboð út í samfélagið. Skilaboðin eru á þá leið að það sé í raun og veru alveg viðurkennt að hækka gjöld um 5,2%. Þá er nærtækt fyrir aðra stóra leikendur í þjóðfélaginu að horfa til sama viðmiðs. Þetta býr til einhvers konar skjól fyrir aðra aðila til þess að hækka sínar gjaldskrár sem þessu nemur. Með öðrum orðum: Það er búið að gefa grænt ljós frá hinu opinbera um að þetta sé hækkun sem er í lagi. Þetta er sennilega líklegasta ástæða þess að verðbólguvæntingar haldast háar. Þrátt fyrir alls konar stór orð hér frá þingmönnum stjórnarmeirihlutans, um að með þessum fjárlögum sé loksins verið að kveða verðbólguna í kútinn, er auðvitað tekið eftir því að viðbrögð í samfélaginu hafa verið þvert á það. Þetta sýnir að verðbólguvæntingar eru háar og fólk og markaðurinn er að búast við því að verðbólgan haldist há fram á næsta ár.

En þetta er auðvitað ekki allt, virðulegi forseti, fjárlagafrumvarpið hefur líka að geyma ýmiss konar skattahækkanir. Þessar breytingar eru oft settar fram með ýmiss konar tæknilegum útfærslum en hafa þó allar sama markmiðið og sömu niðurstöðuna; að hækka skattbyrði fólks og fyrirtækja. Við sjáum þetta t.d. í persónuafslættinum sem var breytt þannig að hækkun vegna framleiðniviðmiðs er nú tekin út. Þetta er afskaplega tæknilegt og ég skora á þá sem eru að hlusta að segja þetta orð þrisvar sinnum upphátt án þess að þeir hiksti. En niðurstaðan er samt alltaf sú sama: Hækkun persónuafsláttar verður minni en ella. Það er minna eftir í veskinu hjá því fólki sem greiðir skatta í landinu en ella. Maður veltir því stundum fyrir sér hvort ríkisstjórnin nánast leiti að tæknilegustu kostnaðarliðunum til að fikta aðeins í til að fólk eigi dálítið erfitt með að halda þræði.

Ef við horfum á hvernig þetta kemur út hjá fyrirtækjum eru stærstu póstarnir í fjárlagafrumvarpinu að það er lagt á banka annars vegar og ferðaþjónustu hins vegar. Bankaskatturinn, sem er afar hár fyrir, er hækkaður verulega. Og þó að þetta sé atriði sem er án efa valið til þess að reyna að velja sér svona þægilegan andstæðing, bankana sem innheimta hjá fólki og fyrirtækjum mánaðarlegar afborganir og lán, þá þarf alltaf að spyrja: Hverjar eru endanlegu afleiðingarnar? Hvaða áhrif hefur þetta á viðskiptavini bankanna, venjulegt fólk? Auðvitað þýðir þetta það að kjörin verða verri og það mun taka lengri tíma en ella að ná niður vaxtakjörum heimila og fyrirtækja. Það er auðvitað fróðlegt í þessu samhengi að rifja upp orð hæstv. utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar í þessum efnum hér í þessum sal frá því í júní 2019 þegar hún sagði að bankaskattur væri allt of hár og skilaði sér beint út í verðlag til viðskiptavina bankans.

Virðulegur forseti. Það verður að nefna sérstaklega ferðaþjónustuna sem fer afar illa út úr fyrirhuguðum breytingum fjárlagafrumvarpsins. Þar er boðað að skatta- og gjaldahækkanir á greinina verði með öllu líklega um 10 milljarðar. Til samanburðar má nefna að heildarhagnaður greinarinnar árið 2024 nam 20 milljörðum. Einn stærsti pósturinn er skattahækkun á baðlón sem hefur verið hér til umræðu í dag. Það er óneitanlega dálítið athyglisvert, virðulegi forseti, að taka eina tiltekna starfsemi, baðlón, út fyrir sviga. Aftur vaknar spurningin hvort ríkisstjórnin sé að reyna að velja sér andstæðing eða velja sér málefni. Hér hefur verið talað um það í dag að þetta sé einhvers konar lúxusvara. Að heyra svona orð koma frá fólki sem segist síðan í aðra röndina vilja byggja upp íslenskt atvinnulíf er í raun alveg ótrúlegt.

Maður veltir fyrir sér: Hvar er fólk eiginlega statt sem segir svona? Gerir hv. ríkisstjórn sér ekki grein fyrir því að ferðaþjónusta er í samkeppni við ferðaþjónustu í öðrum löndum? Við getum ekki leyft okkur að hugsa um þá starfsemi sem er í ferðaþjónustunni sem einhvers konar lúxusvöru fyrir okkur. Með sömu rökum væri væntanlega nánast allt sem viðkemur ferðaþjónustu einhvers konar lúxusvara; hótel, veitingastaðir, rútuferðir, ferðalög. Við verðum að hugsa um þetta út frá samkeppni, hvernig við ætlum að verðleggja okkur og hvar við ætlum að stíga niður. Það á að taka þennan afmarkaða geira og hækka hann sérstaklega úr 11% upp í 25% virðisaukaskatt. Þetta þýðir að ef þessu er varpað beint út í verðlagið má reikna með að hækkun á miðaverði fyrir t.d. eina staka ferð í baðlón sé líklega á bilinu 1.500–2.000 kr. fyrir hvern gest, en þetta er aðeins misjafnt eftir því hvert miðaverðið er. Maður veltir því fyrir sér, virðulegi forseti, hvernig starfsfólk baðlónanna ætlar að standa þarna og horfa í augun á sínum viðskiptavinum og útskýra þetta. Ættu þau kannski að grípa til þessara röksemda? Þetta er auðvitað bara lúxusvara, þú hlýtur að skilja það að hún verður hækkuð hér reglulega.

Ég sé, virðulegur forseti, að tími minn er að klárast þannig að ég ætla aðeins að stytta mál mitt. En það er auðvitað mjög áberandi að framlagning fjárlagafrumvarpsins hefur ekki haft þau áhrif sem ríkisstjórnin ætlaði. Verðbólguvæntingar hafa nú bara frekar farið upp á við heldur en hitt. Greiningaraðilar voru flestir á sama máli eftir að fjárlagafrumvarpið var kynnt. Gjaldahækkanirnar eru sérstaklega nefndar og þær munu ýta undir verðbólgu sem er kannski alveg (Forseti hringir.) sérstaklega grátlegt því það var akkúrat það sem var búið að vara ríkisstjórnina við.