158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[15:29]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir þessa framsögu. Ég er í rauninni með eina meginspurningu til þingmannsins. Öflugir innviðir eru auðvitað grunnforsenda verðmætasköpunar og ég held að við séum alveg sammála um það. Ég hjó eftir því að þingmaðurinn sagði að það væri einungis verið að hækka skatta og það sem mig langaði að varpa ljósi á eru jákvæðar aðhaldsaðgerðir sem er verið að fara í. Það er verið að fækka ríkisstarfsmönnum og stöðugildum um 1% og það er áætlað að draga úr árlegum launakostnaði um 3,2 milljarða. Það er hagræðing í opinberum innkaupum með því að fara í aukna samræmingu og betri nýtingu á rammasamningum. Það er verið að sameina Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Það er sameining sýslumannsembætta og það er sameining HMS og Skipulagsstofnunar. Svo eru ráðuneytin að skera niður hjá sér. Í heildina er í rauninni verið að spara um 2 kr., þ.e. aðhaldsaðgerðir skera niður um 2 kr. en tekjuöflunin er 1 kr. Mín spurning er: Hvernig fær þingmaðurinn það út að einungis sé verið að hækka skatta en það séu engar aðhaldsaðgerðir?