fjárlög 2027.
Frú forseti. Við ræðum hér fjárlög ríkisstjórnarinnar. Ég verð að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum. Við töluðum um litlaus fjárlög hérna, fyrstu fjárlögin, og ég held að það hafi nú verið lýsing sjálfs hæstv. fjármálaráðherra á sínum fjárlögum. Ég átti von á einhverju meiru frá þessari ríkisstjórn á þessum tímapunkti. Auðvitað fögnum við því öll að sýna fram á hallalaus fjárlög. Ég tek þátt í því. Mjög mikilvægt. Hallaleysið er samt frekar lítið. Þetta er alveg pínu ponsulítið. Við getum ekki séð það á framkvæmd þessarar ríkisstjórnar, það sem af er þessu kjörtímabili, að áætlanir standist. Það er ekki svo. En auðvitað vonum við að þessi fjárlög verði hallalaus. Það er uppsafnaður halli á ríkissjóði. Alveg rétt. Hvað eru þetta? 866 milljarðar. Það þarf að vinna bug á þessu. Þessi ríkisstjórn á nú reyndar alveg 134 milljarða af þessu þó að hún sé ekki búin að vera lengur við völd nema í þessi rúmu tvö ár og ekki hefur verið Covid í gangi og ekki hafa verið eldar á Reykjanesi eða einhver risaáföll. Nei, hallinn hefur verið alveg sjálfskapaður af þessari ríkisstjórn. En hvað á þá að gera til að ná stjórn á ríkisfjármálunum og vinna með Seðlabankanum eins og okkur hefur verið tíðrætt um?
Virðulegur forseti. Það eru fyrst og fremst skattahækkanir og það er ekki í fyrsta skipti sem þessi ríkisstjórn hækkar skatta. Síðan þau tóku við ríkisrekstrinum hafa verið hækkaðir skattar á hverju einasta ári á allan almenning í landinu, ekki bara sjávarútvegsfyrirtækin eins og það var nú mikilvægt. Nú er ferðaþjónustan líka undir og allur almenningur í landinu, alveg skýrt. Það kristallast því kannski ágætlega í þessari umræðu hvað hugmyndafræði þeirra flokka, þeirra vinstri flokka sem sitja í ríkisstjórn og míns flokks, Sjálfstæðisflokksins, er ólík. Í Sjálfstæðisflokknum tölum við fyrir því að stækka kökuna. Við tölum fyrir því að það þurfi að skapa verðmæti í samfélaginu, því að þegar fyrirtækin í landinu geta skapað verðmæti geta þau borgað hærri laun. Þau geta borgað hærri skatta til ríkisins og þá er ég ekki að tala um prósentuna heldur upphæðina, krónutöluna. Með því verður til aukið svigrúm hjá hinu opinbera til að standa undir öflugri velferðarþjónustu.
En hugmyndafræðin hjá þessari ríkisstjórn, sem nú ræður ríkjum, gengur ekki út á það. Það kann vel að vera að á einhverjum tyllidögum hafi einhverjir sem hafa stundum kennt sig við hægri viljað meina það og haldið því fram. En það er alveg ljóst á öllum aðgerðum þessarar ríkisstjórnar að það er engin hugmyndafræði sem gengur út á það á bak við þessi fjárlög. Meira að segja heyrði ég, virðulegur forseti, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, formann fjárlaganefndar, segja hér fyrr í dag: Ja, hvenær eru menn að hækka skatta og hvenær ekki? Ég get alveg sagt ykkur: Núna er verið að hækka skatta. Síðasta ár var verið að hækka skatta. Það sem þessi ríkisstjórn hefur gert er að hækka skatta. Þetta er ekki einhver heimspekileg spurning, þetta eru bara staðreyndir á blaði.
Hv. þm. Sigurjón Þórðarson sagði líka að það væri fínt að fá ábendingar um hvar er hægt að spara eða ná í jafnvel enn meiri tekjur, virðulegur forseti. Ég ætla að svara því til að það er örugglega hægt að spara. Ég er tilbúin að koma með ríkisstjórnarflokkunum í það að fara yfir ríkisfjármálin og finna leiðir til að spara, alveg tilbúin í það. En hvar er hægt að finna meiri tekjur? Í mínum huga er það ekki með því að hækka skattprósentur. Það er með því að gefa atvinnulífinu í landinu svigrúm til að skapa þessi verðmæti. Með auknum verðmætum verða til meiri fjármunir í ríkiskassanum. Svo einfalt er það. Þegar hv. þingmenn, stjórnarliðar, koma hingað upp og segja að það sé nóg til og vísa þá m.a. í fjármálakerfi — því við heyrum jú svakalega háar tölur sem venjulegur einstaklingur eins og ég tengi ekkert svakalega vel við þegar verið er að ræða hagnað bankanna — þá koma hér upp þingmenn og segja: Þar er nóg til. En hverju mun hækkun skatta á banka skila? Hæstv. fjármálaráðherra viðurkenndi það sjálfur í viðtali eftir að hann kynnti fjárlögin að auðvitað muni þetta hafa áhrif á gjaldskrá fyrirtækjanna. Hæstv. utanríkisráðherra, formaður Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði í þessum ræðustól — fór að útskýra það þegar verið var að fjalla um hækkun bankaskatts á sínum tíma hvaða áhrif það myndi hafa á almenning í landinu og samkeppnisstöðuna. Þetta eru nú sömu flokkar og hafa nýverið verið að leiða umræðuna um að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið og ein af rökunum fyrir því voru að þá myndi aukast samkeppni.
Virðulegur forseti. Hvað heldur fólk að það sé verið að gera þegar það hækkar skatta umfram það sem þekkist annars staðar í kringum okkur á fyrirtæki í ákveðnum atvinnugreinum? Haldið þið að það sé til að auka samkeppni? Til að fá fleiri fyrirtæki til að koma inn á íslenskan markað? Nei, auðvitað ekki. Fyrir þessu liggja lærðar skýrslur og meira að segja, eins og ég nefndi, hæstv. ráðherra Þorgerður Katrín, hélt góða ræðu um það hér fyrir nokkrum árum.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað af ýmsu að taka og við munum gera það á næstu dögum og hægt að fara í ýmsa liði fjárlaganna. Þetta er auðvitað það sem mun marka stefnuna hjá þessari ríkisstjórn á komandi ári. Ég er hér að tala kannski sérstaklega um þessa stóru mynd. Auðvitað þurfum við að sjá til þess að ríkið sé rekið með afgangi. Ég studdi hallarekstur á sínum tíma, ekki út af því að ég er svo hrifin af hallarekstri, heldur vegna þess að ég er svo hrifin af því að ríkið geti tekið á sig byrðar þegar þarf á því að halda. Þegar við þurftum að bjarga fyrirtækjum, til að mynda ferðaþjónustunni í Covid og heimilum þar sem fólk missti vinnuna, þegar við þurftum að bjarga íbúum Grindavíkur þegar þeir misstu heimili sín út af eldum, þá vildi ég að ríkissjóður myndi nota sitt bolmagn og aðstoða. Þess vegna varð til hallarekstur og núna ættum við að vera búin að snúa þessu við og það hefði verið hægt að gera það fyrr. Ég er alveg sannfærð um að þeir sem nú ráða ríkjum vita það, alla vega ákveðnir aðilar, en það er auðvitað dýrt og erfitt þegar þarf að uppfylla öll kosningaloforð og sérstaklega kannski fyrir flokka sem lofuðu mjög miklu fyrir kosningar. Það var reyndar líka lofað að hækka ekki skatta en það er auðvitað löngu búið að brjóta það loforð. Ég hef nefnt hér bankaskattinn. Eigum við að ræða þetta og baðlónin? Maður finnur fyrir því þegar maður ferðast um landið og heimsækir þessa staði hversu miklar áhyggjur eru hjá sveitarstjórnarfólki, hjá atvinnurekendum á landsbyggðinni, af því hvaða áhrif hann mun hafa á þessar fjárfestingar og uppbyggingu sem búið er að fara í úti um land allt. Við getum líka velt fyrir okkur endurgreiðslu virðisaukaskatts af íbúðarhúsnæði. Hvaða áhrif mun hún hafa á íbúðamarkaðinn til lengri tíma litið?
Virðulegur forseti. Af öllum þessum vondu ákvörðunum sem ég var hér að fara yfir þá held ég að 5,2% gjaldskrárhækkanirnar eða krónutölugjöldin sé líklega það versta. Hvaða skilaboð er ríkisstjórnin að senda inn á vinnumarkaðinn um þessar mundir? Hvaða skilaboð eru það? Forsendur kjarasamninga eru brostnar, það er ljóst, og á þá bara að setja þetta á meiri ís? Að láta sér detta það í hug á þessum tímapunkti að fara í 5,2% hækkanir á þessum krónutölugjöldum er auðvitað að gefa öðrum skjól til að gera það sama. En eftir hverju hafa aðilar vinnumarkaðarins verið að kalla? Þeir hafa einmitt verið að kalla eftir því að við myndum öll standa saman eins og gert var þegar við náðum þessum kjarasamningum. Þá var farið fram á það af verkalýðshreyfingunni að við færum ekki í of miklar hækkanir. Á sama tíma ætluðu ríkið, sveitarfélögin og aðilar á markaði að halda að sér höndum. Það gerðum við fyrst um sinn en þessari ríkisstjórn hefur tekist að tapa og glata þeim bolta algerlega. Það er mjög miður. Við heyrum það núna að aðilum vinnumarkaðarins, fólkinu sem talar fyrir launafólk í landinu, (Forseti hringir.) er verulega brugðið og ég hef þar af leiðandi miklar áhyggjur af því sem koma skal í vetur.